Linda Ben

Humarbrauð með bræddum osti

Humarbrauð með bræddum osti.

Ef þú vilt gera eitthvað sem er bæði einfalt og smakkast eins og alvöru lúxus, þá þarftu að prófa þetta humarbrauð ✨

Hér nota ég humarsúpu sem grunn og lyfti henni upp með hvítlauk, smá chilli og safaríkum humarhölum. Allt er svo sett í gott baguette (helst súrdeigs) sem dregur í sig bragðið og verður mjúkt og djúsí að innan, á meðan osturinn bráðnar yfir og verður fallega gylltur og stökkur að ofan.

Útkoman er svona réttur sem minnir meira á eitthvað sem þú færð á veitingastað, en er í raun ótrúlega einfaldur að gera heima. Fullkominn sem helgarkósý, forréttur eða þegar þú vilt dekra aðeins við þig og aðra 🦞✨

Svona uppskrift sem lítur út fyrir að vera flókin en er það alls ekki og klárast alltaf fyrst af borðinu 💛

Humarbrauð með bræddum osti

Humarbrauð með bræddum osti

Humarbrauð með bræddum osti

Humarbrauð með bræddum osti

Humarbrauð með bræddum osti

Humarbrauð með bræddum osti

Humarbrauð með bræddum osti

Humarbrauð með bræddum osti

  • Baguette (súrdeigs ef hægt)
  • Ora humarsúpa
  • 400 g litlir humarhalar skelflettir
  • 2 hvítlauksgeirar
  • 1/4 tsk þurrkað chillí
  • 100 g rifinn mozzarella
  • Pipar
  • 15 g fersk steinselja

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
  2. Skerið toppinn af baguette brauðinu, skerið ofan í það svo það myndist pláss fyrir humarhalana.
  3. Rífið niður hvítlauksgeirana og steikið létt ofan í potti og hellið svo humarsúpunni ofan í pottinn. Bætið einnig örllítið af chillí kryddi ofan í og skelflettu humarhölunum. Hitið að suðu.
  4. Setjið humarinn með súpunni ofan í brauðið, toppið með rifnum mozzarella. Bakið í 15 mín eða þar til osturinn hefur bráðnað og er byrjaður að gyllast.
  5. Kryddið með pipar og toppið með ferskri steinsellju.

Humarbrauð með bræddum osti

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5