Linda Ben

Hunangssinneps Kartöflusalat

Recipe by
5 mín
| Servings: 4 manns

Hunangssinneps Kartöflusalat

Kartöflusalat þarf alls ekki að vera flókið til að vera ótrúlega gott. Þetta hunangssinneps kartöflusalat er einfalt, ferskt og með fullkomnu jafnvægi milli kremkenndrar áferðar, sætu og smá sýru.

Dressingin er gerð úr dijon sinnepi, hunangi, sýrðum rjóma og örlitlu mæjónesi sem umlykur kartöflurnar fallega og gefur salatinu djúpt og bragðmikið sinnepsbragð án þess að verða of þungt. Paprikan og vorlaukurinn bæta svo við ferskleika og smá crunch sem gerir salatið extra gott með grillmat eða sem hluta af veisluborði.

Þetta er svona meðlæti sem passar með nánast öllu. Fullkomið með grilluðum kjúklingi, steik, hamborgurum eða bara á hlaðborðinu í sumarveislum ✨

Einfalt, fallegt og svona salat sem klárast alltaf fyrst af borðinu

Hunangssinneps Kartöflusalat

Hunangssinneps Kartöflusalat

  • 500 g forsoðnar kartöflur
  • 1 rauð paprika
  • 3 stilkar vorlaukur
  • 1 msk mæjónes
  • 2 msk sýrður rjómi
  • 1 msk dijon sinnep
  • 1 msk hunang
  • Salt og pipar
  • Ferkst dill sem skraut

Aðferð

  1. Skerið kartöflurnar í grófa bita og setjið í skál.
  2. Skerið paprikuna og vorlaukinn smátt niður.
  3. Bætið mæjónesi, sýrðum rjóma, sinnepi og hunangi út í skálina. Hrærið öllu saman, kryddið og smakkið til með salti og pipar.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Hunangssinneps Kartöflusalat

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5