Linda Ben

Hvítlauks og piparkyddlegið lambalæri með smjörsteiktum sveppum, marineruðum tómötum, kartöflubátum og fersku salati

Recipe by
3 klst
Cook: Unnið í samstarfi við SS

Hvítlauks og piparkyddlegið lambalæri með smjörsteiktum sveppum, marineruðum tómötum, kartöflubátum og fersku salati.

Hér höfum við virkilega ljúffengt lambalæri sem er algjör veislumatur. Lambalærið er hvítlauks og piparkryddlegið frá SS sem er alveg ómótstæðileg marinering. Lambalærið er svo að sjálfsögðu borið fram með ljúffengu og sumarlegu meðlæti enda ekki annað hægt að meðan sólin skín svona fallega úti.

hvítlauks og piparkyddlegið lambalæri páskalambalæri með smjörsteiktum sveppum, marineruðum tómötum, kartöflubátum og fersku salati

hvítlauks og piparkyddlegið lambalæri páskalambalæri með smjörsteiktum sveppum, marineruðum tómötum, kartöflubátum og fersku salati

hvítlauks og piparkyddlegið lambalæri páskalambalæri með smjörsteiktum sveppum, marineruðum tómötum, kartöflubátum og fersku salati

hvítlauks og piparkyddlegið lambalæri páskalambalæri með smjörsteiktum sveppum, marineruðum tómötum, kartöflubátum og fersku salati

Hvítlauks og piparkyddlegið lambalæri með smjörsteiktum sveppum, marineruðum tómötum, kartöflubátum og fersku salati

  • Hvítlauks og piparkryddlegið lambalæri frá SS
  • Ferskt timjan
  • Ferskt rósmarín
  • Kartöflubátar í fetaostasósu
  • Rjómasveppasósa (uppskrift hér fyrir neðan)
  • Marineraðir tómatar (uppskrift hér fyrir neðan)
  • Ferskt salat (uppskrift hér fyrir neðan)
  • Smjörsteiktir sveppir

Aðferð:

  1. Takið lambalærið út úr kæli og leyfið því að standa við stofuhita í u.þ.b. 2-3 tíma.
  2. Kveikið á ofninum og stillið á 160°C.
  3. Setjið lambalærið í eldfastmót ásamt timjan og rósmarín og setjið kjöthitamæli inn í miðjuna á kjötinu, bakið þar til kjarnhiti nær 60°C (meðalsteikt), tími fer eftir hversu stórt lærið er og hversu kalt það var þegar það fór inn í ofninn, en við erum alltaf að tala um klukkutíma +.
  4. Úbúið kartöflurnar.
  5. Útbúið sósuna
  6. Útbúið tómatana
  7. Útbúið ferska salatið

Rjómasveppasósan

  • 1/2 laukur
  • 250 g sveppir
  • 2 msk smjör
  • 3 hvítlauksrif
  • 500 ml rjómi
  • vökvinn sem fellur til af nautakjötinu inn í ofninum
  • 2 stk nautakrafts teningar eða eftir smekk, fer eftir því hversu mikið af vökva fellur til af kjötinu.
  • 1 dl rauðvín
  • svartur pipar og salt eftir smekk
  • 1 msk gráðostur
  • Sósulitur eftir smekk

Aðferð:

  1. Skerið laukinn fínt niður og steikið hann upp úr örlitlu smjöri.
  2. Skerið sveppina niður og bætið þeim út á pönnuna ásamt restinni af smjörinu, steikið þangað til mesta vatnið af sveppunum er gufað upp.
  3. Pressið þrjú hvítlauksrif út á og steikið létt í 1-2 mín, hellið svo rjómanum út á. Bætið kraftinum sem féll af nautakjötinu út í sósuna ásamt teningunum rauðvíninu, smá pipar og salt og gráðostinum.
  4. Látið sósuna sjóða svolítið og bætið svo meira af kjötkrafti, salt og pipar, rauðvíni og gráðosti eftir smekk.

Marineraðir tómatar

  • 4 stórir tómatar
  • ½ rauðlaukur
  • 1 hvítlauksgeiri
  • 1 dl hágæða jómfrúar ólífu olía
  • 2 msk balsamik edik með hunangi
  • 1 lúka ferskt basil
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Skerið tómatana niður í frekar þykkar sneiðar, ca 1 cm þykkar, dreifið þeim á fallegan disk.
  2. Skerið rauðlaukinn og hvítlauksgeirann mjög smátt niður og setjið í skál ásamt ólífu olíu, balsamik ediki.
  3. Skerið basil niður og setjið út í skálina ásamt salti og pipar, blandið öllu vel saman og hellið yfir tómatana.
  4. Gott að gera með smá fyrirvara og leyfa þessu aðeins að taka sig áður en þetta er borið fram.

Ferskt salat

  • Blaðsalat
  • ¼ hunangsmelóna
  • Rauð paprika
  • Agúrka
  • Graskersfræ
  • Hágæða ólífu olía

Aðferð:

  1. Skolið grænmetið og skerið það niður, raðið á fallegan disk, dreifið graskersfræjum og olífu olíu yfir.

Smjörsteiktir sveppir með timjan

  • 250 g kastaníu sveppir
  • 100 g smjör
  • u.þ.b. 5 greinar ferskt timjan

Aðferð:

  1. Bræðið smjörið á pönnu og setjið sveppina út á ásamt timjan, leyfið að malla við vægan hita þar til sveppirnir eru eldaðir í gegn.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

hvítlauks og piparkyddlegið lambalæri páskalambalæri með smjörsteiktum sveppum, marineruðum tómötum, kartöflubátum og fersku salati

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5