Linda Ben

Hvítlauks rjómalagaðir þorskhnakkar með sólþurrkuðum tómötum

Recipe by
20 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Samherja | Servings: 3-4 manns

Þessi réttur er algjört sælgæti! Þykkir og safaríkir þorskhnakkar í gylltum hjúp, bornir fram í silkimjúkri hvítlauksrjómasósu með sólþurrkuðum tómötum, ólífum, rauðu pestói og ferskri basilíku. Smá chilí gefur svo réttinum örlítið kikk og bindur bragðið ótrúlega vel saman.

Ég nota Besta bitann af þorskinum frá Samherja en þorskhnakkarnir henta sérstaklega vel í svona rétt þar sem þeir eru þykkir og fallegir og halda sér vel í sósunni. Þetta er einn af þessum réttum sem líta út fyrir að vera algjört sælkeramáltíð en eru í raun mjög einfaldir að útbúa.

Ég myndi bera réttinn fram með kartöflumús, hrísgrjónum eða góðu súrdeigsbrauði til að ná upp allri þessari dásamlegu sósu. 😍 hvítlauks rjómalagaðir þorskhnakkar með hvítlauksrjómasósu

hvítlauks rjómalagaðir þorskhnakkar með hvítlauksrjómasósu

hvítlauks rjómalagaðir þorskhnakkar með hvítlauksrjómasósu hvítlauks rjómalagaðir þorskhnakkar með hvítlauksrjómasósu

Hvítlauksrjómalagaðir þorskhnakkar með sólþurrkuðum tómötum

  • Smjör til steikingar
  • 500 g Besti bitinn af þorskinum – þorskhnakkar frá Samherja
  • 1 egg
  • 1 dl hveiti
  • Salt og pipar
  • 5-6 hvítlauksgeirar
  • 1 msk rautt pestó
  • 300 ml rjómi
  • 200 g sólþurrkaðir tómatar
  • 200 g ólífur
  • 100 g babyleaf eða spínat
  • Klípa af þurrkuðum chilí kryddflögum
  • Fersk basilíka

Aðferð

  1. Hrærið eggið saman í einni skál og setjið hveitið í aðra skál.
  2. Veltið þorskhnökkunum fyrst upp úr egginu og síðan upp úr hveitinu þannig að þeir séu vel hjúpaðir. Kryddið með salti og pipar. Bræðið smjör á pönnu og steikið þorskhnakkana á báðum hliðum þar til fallega gyllt húð hefur myndast. Takið þá af pönnunni og geymið til hliðar.
  3. Rífið hvítlauksgeirana út á pönnuna og steikið létt. Bætið rauðu pestói, rjóma, sólþurrkuðum tómötum og ólífum út á pönnuna. Látið malla í nokkrar mínútur.
  4. Bætið spínatinu/babyleafinu út í og látið það mýkjast saman við sósuna. Kryddið með chilíflögum og smakkið til með salti og pipar.
  5. Leggið þorskhnakkana aftur á pönnuna og leyfið þeim að klára eldunina í sósunni í nokkrar mínútur. Toppið með ferskri basilíku og berið fram.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

hvítlauks rjómalagaðir þorskhnakkar með hvítlauksrjómasósu

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5