Jarðaberja próteinís með góðgerlum
Þessi ís er fullkomin blanda af hollustu og góðgæti. Kremkenndur jarðaberjaís með náttúrulegri sætu úr berjum, góðu próteini og lifandi góðgerlum. Þetta svona ís sem þú getur fengið þér án þess að þurfa að hugsa þig tvisvar um.
AB-jógúrtin gefur ísnum mjúka og ferska áferð ásamt góðgerlum sem styðja við meltinguna, á meðan próteinið gerir hann saðsaman og næringarríkan. Jarðaberin bæta við bæði lit og bragði sem gerir þetta að ótrúlega girnilegum og frískandi ís.
Örnu jógúrtin er núna komin í nýjar og fallegar umbúðir, ég er alveg að elska nýja útlitið þeirra!
Þetta er svona uppskrift sem hentar jafnt eftir æfingu, sem kvöldsnarl eða þegar þig langar í eitthvað sætt sem er líka gott fyrir líkamann. Einfalt, fljótlegt að undirbúa og algjörlega addictive 🍓✨



Jarðaberja próteinís með góðgerlum
- 2 dl frosin jarðaber
- 300 ml Arna jógúrt með liffandi AB-gerlum
- 60 g prótein (hreint, vanillu eða jarðaberja)
Aðferð:
- Setjið frosin jarðaber, jógúrt og prótein í blandara og maukið allt saman. Hellið í Ninja creami glas, lokið glasinu og setjið í frysti í a.m.k. 24 klst.
- Takið glasið úr frosti, setjið í Ninja creami og stillið á light ice cream.
- Skafið með fram hliðunum til að taka ísnálarnar og setjið 3 jarðaber ofan í glasið. Setjið á re-spin.
- Skiptið ísnum á milli glasa og skreytið með jarðaberjum.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar







