Jarðaberjabaka með ostakökumús
Þessi jarðaberjabaka er algjör draumur! 🍓 Stökkur kexbotn með kókos er fylltur með silkimjúkri og léttri jarðaberjaostakökumús og toppaður með ferskum jarðaberjum, hindberjum og söxuðum pistasíuhnetum.
Fersku jarðaberin gefa músinni dásamlegt berjabragð og fallegan bleikan lit, á meðan kókosinn í botninum passar einstaklega vel með jarðaberjunum. Matarlímið hjálpar músinni að halda löguninni en hún helst samt mjúk og létt í áferð.
Bakan er líka einstaklega falleg á borði og tilvalin þegar mann langar að útbúa eitthvað sem lítur út fyrir að vera mikið meira vesen en það í raun er. 😍🍓







Jarðaberjabaka með ostakökumús
Bökubotn
- 200 g Digestive hafrakex
- 100 g kókosmjöl
- 100 g brætt smjör
Ostakökumús
- 300 g Driscoll’s jarðaber
- 3 stk matarlímsblöð
- 200 g Philadelphia rjómaostur
- 1 dl flórsykur
- 250 ml rjómi
Skreyting
- 100 g Driscoll’s jarðaber
- 100 g Driscoll’s hindber
- 1 msk pistasíuhnetur
Aðferð:
- Setjið kexið og kókosmjölið í matvinnsluvél og maukið fínt. Bætið brædda smjörinu út í og blandið saman.
- Þrýstið kexblöndunni jafnt í botninn og upp með hliðunum á smurðu 22 cm bökuformi. Setjið botninn í frysti á meðan fyllingin er útbúin.
- Leggið matarlímsblöðin í kalt vatn og látið þau liggja þar í u.þ.b. 5–10 mínútur.
- Setjið jarðaberin í matvinnsluvél og maukið þar til maukið er orðið slétt.
- Kreistið umframvatnið úr matarlímsblöðunum, setjið þau í lítinn pott og bræðið varlega við vægan hita. Takið pottinn strax af hitanum þegar matarlímið hefur bráðnað.
- Bætið u.þ.b. ½ dl af jarðaberjamaukinu út í matarlímið og hrærið vel saman. Hellið blöndunni síðan út í afganginn af jarðaberjamaukinu og blandið vel saman.
- Hrærið rjómaost og flórsykur saman þar til blandan er mjúk. Þeytið rjómann í annarri skál og blandið honum varlega saman við rjómaostablönduna.
- Bætið helmingnum af jarðaberjablöndunni út í rjómaostablönduna og blandið varlega saman. Bætið síðan afganginum út í og blandið þar til músin er jöfn og fallega bleik.
- Takið bökubotninn úr frystinum og losið hann varlega úr forminu ef þið viljið bera bökuna fram á kökudiski.
- Hellið jarðaberjaostakökumúsinni í bökubotninn og sléttið yfirborðið. Setjið í kæli í a.m.k. 3 klst., eða þar til músin hefur stífnað.
- Skreytið með ferskum jarðaberjum, hindberjum og söxuðum pistasíuhnetum áður en bakan er borin fram.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












