Þennan graut er gott að skella í og taka með sér sem nesti eða útbúa á kvöldin og borða svo í morgunmat.
Jógúrt og ávaxta grautur
- ½ banani
- ½ kíví
- 1 msk chia fræ
- 2 msk hafrar
- 3 msk grísk jógúrt
- ½ dl mjólk
- 10-15 vínber
Aðferð:
- Stappið bananann og kívíið niður, setjið í skál og blandið chia fræjum og höfrum saman við.
- Blandið gríska jógúrtinu fyrst saman við og svo mjólkinni.
- Færið yfir í krukku og geymið í ísskáp í 30 mín eða yfir nótt.
- Setjið 10-15 vínber yfir áður en borðað.
Ef þú prófar þessa uppskrift, þá þætti mér ótrúlega gaman ef þú myndir láta mig vita hvernig smakkast. Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben
Category: