Linda Ben

Jóla mjúkir kanilsnúðar með bökuðum eplum og múslí

Recipe by
2 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Muna | Servings: 8 snúðar

Hér höfum við ljúffengu mjúku kanilsnúðana, sem við flest ættum að kannast við af síðunni, í bragðgóðum jólabúning!

Snúðarnir eru gerðir úr fínu spelti og hrásykur notaður til þess að fá dýpra bragð. Snúðarnir eru svo fylltir með rauðum jólaeplum og múslínu frá Muna með kanil og eplum. Útkoman er hreint út sagt stórkostleg og hvet ég þig eindregið til að smakka þar sem maður kemst svo sannarlega í jólafýling með þessum snúðum.

Ég bakaði snúðana í hringlaga formi með gati í miðjunni til að mynda krans úr snúðunum. En ég skar líka lenguna í færri bita svo hver snúður er svolítið stærri en venjulega. Það gerði ég til þess að snúðarnir myndu passa í hringlaga formið og vera hærri.

Kremið er svo eins og við þekkjum það, þetta ómótstæðilega með rjómaostinum, en skreytt með trönuberjum. Það er engin skylda að skreyta með berjunum en útkoman er svolítið skemmtileg og jólaleg.

jóla mjúkir kanilsnúðar með bökuðum eplum og múslí

jóla mjúkir kanilsnúðar með bökuðum eplum og múslí

jóla mjúkir kanilsnúðar með bökuðum eplum og múslí

jóla mjúkir kanilsnúðar með bökuðum eplum og múslí

Jóla mjúkir kanilsnúðar með bökuðum eplum og múslí

  • 7 g þurrger
  • 120 ml volgt vatn
  • 120 ml volg mjólk
  • ½ dl hrásykur frá Muna
  • 80 g brætt smjör
  • 1 tsk salt
  • 1 egg
  • 450 g fínt spelt frá Muna

Aðferð

  1. Byrjað er á að setja volgt vatn og volga mjólk ásamt gerinu í litla skál og hrært smá til að þurrgerið blotni.
  2. Setjið sykur, smjör, salt og egg í stóra skál og hrærið saman.
  3. Bætið svo nánast öllu hveitinu út í, skiljið um það bil 50 g eftir, og hellið gerblöndunni líka ofan í stóru skálina. Hnoðið deigið saman þangað til allt hefur blandast vel. Deigið á að vera klístrað en ef það er ennþá mjög blautt setjið þá restina af hveitinu út í.
  4. Látið deigið hefast í 1 – 1 ½ klst eða þangað til deigið hefur tvöfaldast í stærð.

Fylling:

  • 120 g mjúkt smjör
  • 2 dl sykur
  • 2 msk kanill
  • 200 g haframúslí með eplum og kanil frá Muna
  • 1 stórt rautt epli
  1. Þegar deigið hefur hefað sig dreifið þið svolítið af hveiti á borðið, takið deigið úr skálinni og fletjið það út í um það bil 20×40 cm flöt.
  2. Blandið saman mjúku smjöri, sykri og kanil í skál, hrærið þar til blandað saman. Smyrjið kanilsykurssmjörinu yfir allt deigið.
  3. Dreigið múslíinu yfir.
  4. Skerið eplið í litla bita og dreifið yfir deigið.
  5. Rúllið svo upp deiginu frá 40 cm endanum í lengju og skerið hana svo í 8 bita.
  6. Smyrjið hringlaga form með gati í miðjunni og raðið snúðunum ofan í formið.
  7. Leggið hreint viskustykki yfir formið og látið snúðana hefast í um það bil 30 mín.
  8. Stillið ofninn á 175°C og undir og yfir hita.
  9. Setjið snúðana í ofninn og látið bakast í 35-45 mín eða þangað til þeir eru orðnir fallega gullnir á litinn.

Glassúr:

  • 4 msk smjör
  • 400 g flórsykur
  • ½ tsk vanilludropar
  • 2-3 msk heitt vatn
  • 2 msk rjómaostur (má sleppa, en er voðalega gott)
  1. Á meðan snúðarnir eru í ofninum er gott að útbúa glassúrið. Það er gert með því að bræða smjörið í potti og bæta svo flórsykrinum útí og hrært vel.
  2. Bætið svo vanilludropunum útí ásamt heitu vatni. Best er að setja vatnið hægt út í og hræra vel eftir hverja skeið. Setjið 2 skeiðar ef þið viljið sleppa rjómaostinum, annars 3 msk.  Hrærið rjómaostinn saman við.
  3. Smyrjið svo glassúrinu yfir í því magni sem þið viljið.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

jóla mjúkir kanilsnúðar með bökuðum eplum og múslí

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5