Kaldur hafragrautur með hnetusmjöri og berjum sem er svo góður!
Þennan graut er upplagt að gera kvöldið áður og eiga tilbúinn inn í ísskáp morguninn eftir.
Grauturinn er stútfullur af hollri orku sem heldur manni söddum langt fram eftir degi.
Kaldur hafragrautur með hnetusmjöri og berjum
- Þykk AB-mjólk frá Örnu Mjólkurvörum
- ½ dl hafrar
- ½ msk chia fræ
- ½ banani
- 1 tsk hnetusmjör
- 2-3 jarðaber
- 1 lúka bláber
Aðferð:
- Blandið saman AB-mjólk, höfrum og chia fræjum. Skerið bananann í bita og blandið honum saman við. Setjið í krukku.
- Setjið hnetusmjör ofan á.
- Skerið jarðaberin i sneiðar og setjið ofan á ásamt bláberjunum.
- Ath. ef þið viljið lenga geymslutíma grautsins þá sleppiði að setja berin ofan á, þannig geymist hann í u.þ.b. 2 daga í kæli.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben svo ég sjái afraksturinn.
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: