Þessi kanilsnúða bananakaka er alveg einstaklega góð! Hún sameinar allt það besta í einni köku, mjúka bananaköku, dásamlegt kanilsykurbragð og silkimjúkt rjómaostakrem.
Ég nota Lindu Ben vanillukökublönduna mína sem grunn í kökuna en mér finnst svo skemmtilegt hvað það er hægt að nota hana á marga mismunandi vegu. Hér bæti ég vel þroskuðum banönum út í deigið sem gera kökuna einstaklega mjúka og djúsí. Kanilsykrinum er síðan dreift yfir og hann dreginn aðeins niður í deigið svo maður fær þetta dásamlega kanilsnúðabragð í hverjum bita.
Vanillukökublandan er frábær grunnur þegar mann langar að baka eitthvað gott á einfaldan hátt, hvort sem maður fylgir uppskriftinni á pakkanum eða notar hana sem grunn og leikur sér áfram með hana eins og hér. Lindu Ben vanillukökublandan fæst í Krónunni og Hagkaup.
Rjómaostakremið setur svo punktinn yfir i-ið. Dásamlega góð kaka með kaffinu sem er einföld í bakstri en smakkast eins og bananakaka og kanilsnúður hafi eignast barn







Kanilsnúða bananakaka
- Vanillukaka – þurrefnablanda Lindu Ben
- 3 egg
- 1 dl vatn
- 1 ½ dl bragðlítil olía eða brætt smjör
- 2 vel þroskaðir bananar
- ½ dl kanilsykur
Rjómaostakrem
- 200 g rjómaostur
- 250 g flórsykur
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
- Setjið þurrefnablönduna í skál ásamt eggjum, vatni, olíu eða bræddu smjöri og stöppuðum banönum.. Blandið öllu vel saman þar til deigið er orðið mjúkt og kekkjalaust. Smyrjið 20 x 30 cm form og hellið deiginu í formið.
- Dreifið kanilsykrinum jafnt yfir deigið. Notið prjón til að draga kanilsykurinn létt ofan í deigið og mynda fallegt mynstur.
- Bakið kökuna í u.þ.b. 30 mín eða þar til kakan er bökuð í gegn. Kælið kökuna og setjið á fallegan disk eða bakka.
- Setjið rjómaostinn í skál ásamt flórsykri og blandið saman. Dreifið kreminu yfir kökuna og skerið hana í bita.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar











