Linda Ben

Karamellu kropps ís

Þessi Karamellu Kropps ís er hættulega góður! 🍫🍦 Rjómakenndur súkkulaðiís með stökku Nóa Kroppi með karamellukurli og sjávarsalti. Algjörlega fullkomin blanda af sætu, söltu og krönsí.

Ísinn er ótrúlega einfaldur að útbúa í Ninja CREAMi og þarf aðeins örfá hráefni.

Algjör draumur fyrir alla sem elska súkkulaði, karamellu og Kropp!

Karamellu kropps ís

Karamellu kropps ís

Karamellu kropps ís

Karamellu kropps ís

Karamellu kropps ís

  • 125 ml mjólk (má skipta út fyrir súkkulaði próteindrykk líka)
  • 125 ml rjómi
  • 1 msk súkkulaðibúðingur
  • Nóa Kropp með karamellukurli og sjávarsalti

Aðferð:

  1. Setjið mjólk, rjóma og súkkulaðibúðing í skál og blandið saman. Hellið blöndunni í Ninja creami glas og frystið í a.m.k. 24 klst.
  2. Setjið glasið í Ninja creami vélina og stillið á light icecream.
  3. Skafið meðfram hliðunum á glasinu til að losa ísnálarnar. Bætið vel af Nóa Kroppi með karamellukurli og sjávarsalti út í. Stillið á +extra til að blanda saman við ísinn.
  4. Berið ísinn fram með meira Nóa Kroppi með karamellukurli og sjávarsalti yfir.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

Karamellu kropps ís

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5