Linda Ben

Kararmellu pralín sörur

Recipe by
3 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Nóa Síríus | Servings: U.þ.b. 60 stk

Kararmellu pralín sörur eru svo dásamlega góðar. Hér höfum við þessar klassísku smákökur sem við þekkjum mörg svo vel, í nýrri og ljúffengri karamellu útgáfu.

Það er um að gera að baka mikið af þessum smákökum, jafnvel nokkrar mismunandi útgáfur og geyma í frysti. Það er ekkert betra en að næla sér svo í sörur í frystinn þegar manni langar í eitthvað gott.

Kararmellu pralín sörur

Kararmellu pralín sörur

Kararmellu pralín sörur

Kararmellu pralín sörur

Krem

  • 3 eggjarauður
  • 100 g vatn
  • 100 g sykur
  • 300 g Síríus pralín súkkulaði með saltkaramellufyllingu
  • 100 g mjúkt smjör

Botnar

  • 3 eggjahvítur
  • 1/3 tsk. salt
  • 1/3 tsk. cream of tartar
  • 50 g sykur
  • 200 g flórsykur
  • 200 g möndlumjöl

Hjúpur

  • 400 g Síríus suðusúkkulaði

Aðferð:

  1. Byrjið á því að útbúa kremið.
  2. Þeytið eggjarauður í hrærivél þar til blandan er orðin létt og ljós. Hitið vatn og sykur í potti í um 3 mínútur eða þar til sykurinn hefur náð að leysast upp í vatninu. Hellið sykurvatninu saman við eggjarauðurnar í mjórri bunu og hrærið rólega á meðan. Þeytið þar til blandan er loftmikil og nánast hvít að lit.
  3. Bræðið Síríus pralín súkkulaðið. Hellið því næst súkkulaðibráðinni saman við eggjablönduna í mjórri bunu og hrærið rólega á meðan. Stoppið reglulega og skafið hliðar skálarinnar með sleikju svo allt blandist vel saman. Skerið mjúka smjörið í litla bita og þeytið það saman við.
  4. Geymið kremið inni í ísskáp í um klukkutíma eða á meðan verið er að útbúa botnana.
  5. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C með yfir- og undirhita.
  6. Setjið eggjahvítur í skál ásamt salti og cream of tartar, þeytið þar til blandan freyðir og bætið þá sykrinum út í. Þeytið þar til stífir toppar myndast.
  7. Blandið saman flórsykri og möndlumjöli. Bætið út í eggjahvítublönduna og veltið varlega saman við með sleikju þar til samlagað.
  8. Hellið deiginu ofan í sprautupoka með hringlaga stút.
  9. Sprautið á smjörpappírsklæddar ofnplötur þannig að hver kaka sé u.þ.b. 4 cm í þvermál, passið að hafa u.þ.b. 2-3 cm bil á milli þeirra svo að þær klessist ekki saman í ofninum. Bakið í u.þ.b. 12 mín. Leyfið kökunum að kólna.
  10. Smyrjið kremi á hverja köku svo það sé kúpt í miðjunni en þynnist út að köntunum. Kælið kökurnar í stutta stund.
  11. Bræðið loks súkkulaði yfir vatnsbaði og hjúpið hverja köku með því að dýfa kreminu ofan í súkkulaðið. Leggið kökurnar á grind á meðan súkkulaðið storknar.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5