Kjúklingasalat með ferskum berjum og burrata osti. Ferkt og bragðgott salat sem þú átt eftir að elska!
Kjúklinasalat með ferskum berjum og burrata osti
- Salat blanda
- 2 stk foreldaðar kjúklingabringur
- 3-4 stk sneiðar hráskinka
- 1-2 dl hindber
- 2 msk furuhnetur
- Burrata
Aðferð:
- Skolið salatið og hindberin og þerrið vel.
- Skerið kjúklingabringurnar í bita og rífið hráskinkuna niður.
- Dreifið öllum innihaldsefnunum saman á bakka. Opnið burrata ostinn og berið hann fram ofan á salatinu.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: