Linda Ben

Kjúklinga enchiladas uppskrift

Recipe by
40 mín
Cook: Unnið í samstarfi með Örnu Mjólkurvörum | Servings: 4-5 manns

Kjúklinga enchiladas

Frábær réttur sem er ótrúlega bragðmikill, löðrandi í osti og gúmmulaði. Þú átt alveg örugglega eftir að elska þennan rétt.

Það er best að nota foreldaðar kjúklingabringur og smella öllu saman á létt pönnu, þá tekur þetta enga stund. Það er auðvelt að búa til sína enchilada sósu og algjör óþarfi að fara út í búð sérstaklega að kaupa svoleiðis ef þú átt öll kryddin til að gera hana frá grunni. Sósan er svolítið sterk ein og sér en þegar öllu hefur verið blandað saman á vefjurnar hafa öll brögðin blandast svo vel saman og því er rétturinn alls ekki sterkur.

Ég mæli með að bera þennan rétt fram með fersku kóríander, grísku jógúrti og kirsuberjatómötum.

Kjúklinga enchiladas uppskrift

Kjúklinga enchiladas uppskrift

Kjúklinga enchiladas

  • 2 kjúklingabringur (foreldaðar)
  • 5 vefjur
  • 400 g Mozarella með pipar kryddosti frá Örnu Mjólkurvörur
  • 300 g gular baunir
  • 400 g nýrnanbaunir
  • 1 laukur
  • 1 paprika
  • Enchilada sósa (uppskrift hér fyrir neðan)
  • Grískt jógúrt frá Örnu Mjólkurvörur
  • Ferskt kóríander
  • 100 g kirsuberjatómatar

Enchilada sósa

  • ½ dl ólífu olía
  • 2 msk hveiti
  • ½ msk chillí krydd
  • ½ msk papriku krydd
  • ½ tsk hvítlauks krydd
  • ¼ tsk lauk krydd
  • ½ tsk cumin
  • 500 ml vatn
  • 1 stk kjúklingakraftur

Aðferð:

  1. Byrjið á því að útbúa sósuna með því að setja ólífu olíu og hveiti í pott. Steikið saman í 1-2 mín til að ná mesta hveitibragðinu úr. Bætið út á kryddunum og hrærið saman. Bætið út á vatninu og kjúklingakraftinum, hrærið þar til samlagað, látið suðuna koma upp og malla saman í 4-5 mín.
  2. Á meðan sósan er að malla, skerið laukinn og paprikuna niður, steikið á pönnu upp úr olíu þar til laukurinn er orðinn glær. Skerið elduðu kjúklingabringurnar niður í bita og bætið út á pönnuna ásamt baununum.
  3. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C.
  4. Setjið 2 msk af sósu á hverja vefju og dreifið úr. Skiptið kjúklingablöndunni í 5 hluta og setjið á vefjurnar ásamt 50 g af rifnum osti á hverja vefju. Rúllið upp.
  5. Setjið u.þ.b. 3 msk af sósu í botninn á eldföstu móti og raðið vefjunum í mótið. Setjið u.þ.b. 1 msk af sósu ofan á hverja vefju og dreifið restinni af ostinum yfir. Bakið inn í ofninum í u.þ.b. 20 mín eða þar til osturinn er byrjaður að gyllast.
  6. Berið fram með grískri jógurt og fersku kóríander.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar,

Kjúklinga enchiladas uppskrift

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5