Linda Ben

Kjúklinga rjómaosta ídýfa

Recipe by
20 mín
Cook: Unnið í samstafi við Innnes | Servings: 3 manns

Kjúklinga rjómaosta ídýfa

Þessi kjúklinga rjómaosta ídýfa er ótrúlega einföld, alveg svakalega bragðgóð og hreinlega ómögulegt að hætta að borða hana!

Hún er gríðarlega djúsí, minnir ónneitanlega á klassísku eðluna sem margir þekkja. Mildur rjómaosturinn með hvítlauknum og hunangssinnepi er svo góður með kjúklingnum og örlitlum hita frá buffalo sósunni. Fullkomin uppskrift þegar þú átt afganga af kjúklingi eða vilt búa til eitthvað fljótlegt sem slær í gegn í veislum, á föstudagskvöldi eða í sjónvarpskvöldmatnum.

Ég elska að nota prótein Philadelphia ostinn í þessa uppskift, alveg sama áferðin og svolítið hærra próteininnihald.

Ídýfan er bökuð þar til osturinn bráðnar og toppurinn fær dásamlega gullin lit, og borin fram með brauði, kexi eða fersku grænmeti.
Þetta er sú ídýfa sem fólk biður alltaf um uppskriftin af.

Kjúklinga rjómaosta ídýfa

Kjúklinga rjómaosta ídýfa

Kjúklinga rjómaosta ídýfa

Kjúklinga rjómaosta ídýfa

Kjúklinga rjómaosta ídýfa

  • 400 g Philadelphia prótein rjómaostur
  • 1 hvítlauksgeiri
  • 2 tsk hunangssinnep
  • Salt og pipar
  • U.þ.b. 400 g eldaður kjúklingur (t.d. afgangs kjúklingur eða ef hrár, kryddið með kjúklingakryddblöndu og eldið inn í ofni þar til tilbúinn)
  • U.þ.b. 2 msk buffalo sósa
  • U.þ.b. 100 g Rifinn ostur
  • Fersk steinselja (má sleppa)

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið rjómaostinn í skál ásamt rifnum hvítlauksgeira, hunangssinnnepi, salti og pipar, hrærið saman og hellið í eldfastmót.
  3. Skerið niður eldaða kjúklinginn og dreifið honum yfir rjómaostinn, Hellið svolítið af buffalo sósu yfir og dreifið rifnum osti yfir.
  4. Bakið inn í ofni í u.þ.b. 20-25 mín.
  5. Rífið svolítið af ferskri steinselju yfir ef þið viljið.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Kjúklinga rjómaosta ídýfa

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5