Linda Ben

Kjúklingur í ítalskri jógúrt marineringu

Recipe by
1 klst og 20 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur | Servings: 4 manns

Kjúklingur í ítalskri jógúrt marineringu.

Æðisleg létt og bragðgóð marinering fyrir kjúklinginn. Kjötið verður alveg einstaklega mjúkt þegar það er marinerað í jógúrti, sérstaklega ef tími gefst til að láta kjötið marinerast vel og lengi.

Hægt er að bera þennan rétt með því meðlæti sem þér finnst gott en ég mæli sérstaklega með þessu.

kjúklingur í ítalskri jógúrt marineringu

kjúklingur í ítalskri jógúrt marineringu

Kjúklingur í ítalskri jógúrt marineringu

  • 8 kjúklingalæri
  • 1 ½ dl AB-mjólk frá Örnu Mjólkurvörum
  • 4-5 hvítlauksgeirar
  • 1 msk oregano
  • ½ tsk basil
  • ½ tsk timjan
  • 1 tsk sítrónu pipar
  • 1 tsk salt
  • 1/8 tsk þurrkaður chillí
  • Sítróna

Aðferð:

  1. Setjið AB-mjólkina í poka sem rýmir öll kjúklingalærin, pressið hvítlauksgeirana út í og setjið kryddin ofan í pokann, blandið vel saman og bætið kjúklingalærunum út í. Hjúpið kjúklinginn í jógúrtinu og látið marinerast í amk klst, gott ef hægt er að láta standa inn í ísskáp yfir nótt.
  2. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C.
  3. Setjið kjúklinginn í eldfast mót og bakið inn í ofni í u.þ.b. 35-40 mín eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. Ef það fer að myndast mikill vökvi frá kjúklingnum í eldfasta mótinu þá er gott að taka svolítið af honum með ausu eða skeið.
  4. Skerið niður sítrónuna í sneiðar og raðið í eldfasta mótið.

kjúklingur í ítalskri jógúrt marineringu

 

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5