Linda Ben

Klassískar belgískar vöfflur

Recipe by
20 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur

Klassískar belgískar vöfflur sem bragðast dásamlega!

Þú getur borið þær fram því sem þér þykir gott, rjómi, sulta og ber er alltaf klassæiskt en ég mæli líka með að prófa að setja hlynsíróp.

Eggin eru aðskilin í þessari uppskrift þ.e. eggjarauðurnar eru þeyttar saman við sykurinn, smjörið og allt hitt en eggjahviturnar eru þeyttar sér að stífum toppum og sem eru svo velt saman við deigið.

Klassískar belgískar vöfflur

Klassískar belgískar vöfflur

Klassískar belgískar vöfflur

Klassískar belgískar vöfflur

Klassískar belgískar vöfflur

  • 2 egg, eggjarauða og eggjahvíta aðskilin
  • 230 g brætt smjör
  • 350 ml mjólk
  • 1 tsk vanilludropar
  • 320 g hveiti
  • 150 g sykur
  • 3 ½ tsk lyftiduft
  • 500 ml rjómi
  • Fersk ber
  • Sulta eða hlynsíróp

Aðferð:

  1. Kveikið á vöfflujárninu svo það sé orðið heitt þegar þarf að nota það.
  2. Setjið eggjahvíturnar í alveg tandurhreina skál og þeytið þær þar til stífir toppar hafa myndast.
  3. Í aðra skál setjiði eggin og sykurinn og þeytið þar til létt og ljóst, bætið þá smjörinu og mjólkinni út í ásamt vanilludropunum.
  4. Blandið saman hveiti, sykri og lyftidufti, bætið út í blönduna og blandið saman við, allt í góðu þótt blandan sé ennþá smá kekkjótt, þeir fara á eftir.
  5. Bætið nú eggjahvítunum saman við og veltið þeim varlega saman við deigið þar til það verður kekklaust.
  6. Bakið deigið á vöfflujárninu í nokkrum skömmtum.
  7. Þeytið rjóma og berið fram með vöfflurnum ásamt berjum, sultu og hlynsírópi.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Klassískar belgískar vöfflur

2 Reviews

  1. Anna Jónsdóttir

    Vantar magn í vanilludropum 😉

  2. Linda

    Komið í lag, takk fyrir að láta mig vita 😊

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5