Linda Ben

Klassískur steiktur fiskur

Recipe by
20 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Hnýfill | Servings: 4 manns

Það er eitthvað svo ótrúlega notalegt við klassískan steiktan fisk með smjöri og kartöflum. Svona alíslenskan hversdagsmat sem flest okkar ólust upp við og klikkar bara aldrei.

Fiskurinn verður gullinbrúnn og stökkur að utan en mjúkur og safaríkur að innan og svo er hann toppaður með steiktum lauk og nóg af bræddu smjöri sem fer fullkomlega með soðnum kartöflunum.

Mér finnst þessi matur bara svo dásamlega einfaldur. Engin flókin hráefni eða vesen, bara góð hráefni sem fá að njóta sín. Fiskurinn í raspi frá Hnýfill er líka svo þægilegur og virkilega góður, sem gerir þetta að fullkomnum fjölskyldurétti fyrir annasama daga. Þú finnur Fisk í raspi frá Hnýfli í frystinum í búðunum, hann er því eins ferskur og hann gerist þegar maður tekur hann upp úr frystinum heima. Ég á alltaf nokkra svona pakka í frystinum hér heima því þetta er bara svo þægilegur matur til að grípa í. Hollt og virkilega gott.

Klassískur heimilismatur á sinn allra besta hátt

Klassískur Steiktur fiskur uppskrift

Klassískur Steiktur fiskur uppskrift

Klassískur Steiktur fiskur uppskrift

Klassískur Steiktur fiskur uppskrift

Klassískur Steiktur fiskur uppskrift

Klassískur Steiktur fiskur uppskrift

Klassískur Steiktur fiskur uppskrift

Klassískur Steiktur fiskur

  • Fiskur í raspi frá Hnýfill
  • 200 g smjör – skipt í nokkra hluta
  • 1 laukur
  • Salt
  • 1-2 msk capers (má sleppa)
  • Sítróna
  • Steinselja (má sleppa)
  • 500 g kartöflur

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 100°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið kartöflur í pott og sjóðið þar til mjúkar, skrælið kartöflurnar.
  3. Græjið fiskinn á meðan kartöflurnar eru að soðna.
  4. Setjið klípu af smjöri á pönnuna og steikið fiskinn á báðum hliðum í 3-4 mín á hvorri hlið.
  5. Þegar fiiskurinn er orðinn steiktur, setjið hann þá í eldfastmót og steikið restina af fiskinum, setjið eldffastamótið inn í ofn til að halda fiskinum heitum á meðan. Mér finnst gott að setja smá smjör í eldfastamótið líka.
  6.  Þegar allur fiskurinn er steiktur, skeriði þá lauk í þunnar sneiðar og steikið upp úr góðum skammti af smjöri. Setjið laukinn ofan á fiskinn en hellið smörinu í skál og berið fram með fiskinum og soðnum kartöflum.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Klassískur Steiktur fiskur uppskrift

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5