Þessir klessupiparkökukanilsnúðar eru eitthvað það allra girnilegasta sem hægt er að baka! 😍 Dúnmjúkir, volgir snúðar með dásamlega góðri klessupiparkökufyllingu og silkimjúkum rjómaostaglassúr yfir. Algjör draumur!
Klessupiparkökudeigið mitt er svo ótrúlega gott og ég elska hvað það er skemmtilegt að nota það í eitthvað allt annað en bara að baka smákökur, þó svo að klessupiparkökurnar standi auðvitað alltaf fyrir sínu! Deigið er dásamlega bragðmikið, með þessu ljúffenga piparkökubragði sem við tengjum svo sterkt við jólin, og passar alveg einstaklega vel sem fylling í mjúka og djúsí kanilsnúða.
Það sem gerir þessa snúða svo sérstaklega góða er að klessupiparkökudeigið bakast inn í snúðana og myndar mjúka, sæta og kryddaða fyllingu. Svo er rjóma hellt yfir snúðana áður en þeir fara í ofninn, sem gerir þá enn mýkri og meira djúsí. Að lokum er dásamlegum rjómaostaglassúr smurt yfir á meðan þeir eru enn volgir. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað þetta er gott!
Klessupiparkökudeigið mitt fæst í Krónunni og ég mæli svo sannarlega með að þið nælið ykkur í pakka og prófið þessa uppskrift. Hún er fullkomin fyrir aðventukaffið, jólabrönsinn eða bara þegar ykkur langar að fylla heimilið af dásamlegum jólailmi. ❤️🎄











Klessupiparkökukanilsnúðar
- 7 g þurrger
- 120 ml volgt vatn
- 120 ml volg mjólk
- ½ dl sykur
- 80 g brætt smjör
- 1 tsk salt
- 1 egg
- 450 g hveiti
Fylling
- Klessupiparkökudeig Lindu Ben
- 50 g smjör
- 1 dl rjómi
Rjómaostaglassúr
- 4 msk smjör
- 400 g flórsykur
- ½ tsk vanilludropar
- 2-3 msk heitt vatn
- 2 msk rjómaostur (má sleppa, en er voðalega gott)
Aðferð
- Byrjað er á að setja volgt vatn og volga mjólk ásamt gerinu í litla skál og hrært smá til að þurrgerið blotni.
- Setjið sykur, smjör, salt og egg í stóra skál og hrærið saman.
- Bætið svo nánast öllu hveitinu út í, skiljið um það bil 50 g eftir, og hellið gerblöndunni líka ofan í stóru skálina. Hnoðið deigið saman þangað til allt hefur blandast vel. Deigið á að vera klístrað en ef það er ennþá mjög blautt setjið þá restina af hveitinu út í.
- Látið deigið hefast í 1 – 1 ½ klst eða þangað til deigið hefur tvöfaldast í stærð.
- Þegar deigið hefur hefað sig dreifið þið svolítið af hveiti á borðið, takið deigið úr skálinni og fletjið það út í um það bil 20×40 cm flöt.
- Bræðið smjörið og penslið því á deigið.
- Fletjið út klessupiparkökudeigið á milli tveggja smjörpappírsarka þannig að deigið sé u.þ.b. 5 mm að þykkt og nánast 20×40 cm stórt. Leggið útflatta smákökudeigið á snúðadeigið.
- Rúllið svo upp deiginu frá 40 cm endanum í lengju og skerið hana svo í 12 bita.
- Smyrjið frekar stórt eldfast mót með smjöri og raðið snúðunum ofan í formið, það má vera frekar rúmt á milli snúðanna því þeir eiga eftir að stækka.
- Leggið hreint viskustykki yfir formið og látið snúðana hefast í um það bil 30 mín. Hellið rjóma yfir snúðana.
- Stillið ofninn á 175°C og undir og yfir hita.
- Setjið snúðana í ofninn og látið bakast í 35-40 mín (tími fer eftir hversu þykkir snúðarnir eru) eða þangað til þeir eru orðnir fallega gullnir á litinn.
- Á meðan snúðarnir eru í ofninum er gott að útbúa glassúrið. Það er gert með því að bræða smjörið í potti og bæta svo flórsykrinum útí og hrært vel.
- Bætið svo vanilludropunum útí ásamt heitu vatni. Best er að setja vatnið hægt út í og hræra vel eftir hverja skeið. Setjið 2 skeiðar ef þið viljið sleppa rjómaostinum, annars 3 msk. Hrærið rjómaostinn saman við.
- Smyrjið svo glassúrinu yfir í því magni sem þið viljið.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












