Þetta er kokteillinn sem sló algjörlega í gegn á jólaföndurs- og baksturskvöldinu sem ég hélt fyrir vinkonur mínar um daginn.
Þessi dásamlegi klessupiparköku Martini er eins og jólin í glasi! Silkimjúkur og rjómakenndur kokteill með ljúffengu piparkökubragði, mildri vanillu og alvöru klessupiparköku sem er hrist saman við drykkinn. Útkoman er alveg ómótstæðileg!
Ég nota Koskenkorva Gingerbread og Koskenkorva vanilluvodka sem passa einstaklega vel saman og gefa kokteilnum þetta dásamlega jólalega bragð. Svo set ég eina af klessupiparkökunum mínum út í hristarann sem gerir drykkinn enn meira djúsí og góðan!
Klessupiparkökurnar mínar fást tilbúnar í Krónunni og eru auðvitað dásamlegar einar og sér, en mér finnst svo skemmtilegt að nota þær líka á óvæntan hátt.
Þessi kokteill er fullkominn í jólaboðið, á stelpukvöldið eða bara þegar ykkur langar að gera eitthvað extra hátíðlegt 🎄✨

Klessupiparköku Martini
- 50 ml Koskenkorva Gingerbread
- 30 ml Koskenkorva vanillu vodka
- 30 ml rjómi
- 30 ml nýmjólk
- Klakar
- 1 stk Klessupiparkaka
Aðferð
- Setjið Koskenkorva Gingerbread, vanillu voddka, rjóma, mjólk og Klessupiparköku í kokteilhristara ásamt klökum.
- Hristið vel í 30 sekúndur þar til drykkurinn er orðinn ískaldur og örlítið froðukenndur.
- Hellið drykkum í gegnum kokteilsigti í kokteilglasið og skreytið með hálfri klessupiparköku.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar













