Linda Ben

Klessupiparköku með hvítum súkkulaðibotni

Recipe by
25 mín
| Servings: 16 kökur

Þessar mjúku og seigu klessupiparkökur með stökkum hvítum súkkulaðibotni eru algjört sælgæti! Ljúffengt piparkökubragðið passar svo ótrúlega vel með sæta, hvíta súkkulaðinu og samsetningin er eiginlega ómótstæðileg.

Það besta er hvað það er einfalt að útbúa þær! Ég nota tilbúna klessupiparkökudeigið mitt sem fæst í Krónunni og það eina sem þarf að bæta við er hvítt súkkulaði. Það gerist varla mikið auðveldara að útbúa svona fallegar og girnilegar jólasmákökur!

Mér finnst svo skemmtilegt að prófa nýjar útfærslur á smákökudeigunum mínum og þessi er klárlega ein af mínum uppáhalds. Fullkomnar á jólakökudiskinn, í aðventukaffið eða til að gefa einhverjum sem manni þykir vænt um. 🎄❤️

Klessupiparköku með hvítum súkkulaðibotni

Klessupiparköku með hvítum súkkulaðibotni

Klessupiparköku með hvítum súkkulaðibotni

Klessupiparköku með hvítum súkkulaðibotni

Klessupiparköku með hvítum súkkulaðibotni

Klessupiparköku með hvítum súkkulaðibotni

Klessupiparkökur með hvítum súkkulaðibotni

  • 400 g Klessupiparkökudeig Lindu Ben
  • 250 g hvítt súkkulaði

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
  2. Skiptið deiginu í 16 hluta og rúllið upp í kúlur. Raðið á smjörpappírsklædda ofnplötu, bakið í 11 mín og leyfið kökunum að kólna fullkomlega.
  3. Bræðið hvíta súkkulaðið yfir vatnsbaði. Setjið u.þ.b. ½ msk í einu af hvítu súkkulaði á smjörpappír og leggið eina smáköku yfir hvíta súkkulaðið. Leyfið súkkulaðinu að stirðna fullkomlega áður en þið takið kökurnar af smjörpappírnum.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Klessupiparköku með hvítum súkkulaðibotni

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5