Þessi dásamlega góða döðlukaka með heitri karamellusósu og vanilluís er einn af þessum eftirréttum sem maður fær bara ekki nóg af! Kakan er einstaklega mjúk og safarík og þegar heitri karamellusósunni er hellt yfir og köldum vanilluís bætt við verður útkoman alveg ómótstæðileg.
Þetta er fullkominn eftirréttur fyrir hátíðarnar og mér finnst sérstaklega skemmtilegt að baka kökurnar í litlum formum svo hver og einn fái sína eigin köku.
Ég nota Quooker kranann minn mikið í eldhúsinu og hann kemur sér einstaklega vel í þessari uppskrift. Til að gera döðlukökuna þarf fyrst að mýkja döðlurnar í sjóðandi heitu vatni og með Quooker fæ ég það beint úr krananum, án þess að þurfa að bíða eftir að vatnið sjóði í hraðsuðukatli eða potti.
Quooker er svo miklu meira en venjulegur eldhúskrani! Hann gefur sjóðandi heitt vatn á augabragði og sparar þannig bæði tíma og fyrirhöfn í eldhúsinu. Það er hægt að nota nákvæmlega það magn af vatni sem þarf hverju sinni og draga þannig úr óþarfa vatnssóun. Kraninn er einnig hannaður með öryggi í huga, meðal annars með sérstökum öryggisbúnaði sem kemur í veg fyrir að sjóðandi vatn fari óvart af stað. Quooker er líka hannaður með orkunýtni í huga og vel einangruðum vatnstanki sem heldur vatninu heitu. Svo er auðvitað mikill kostur að losna við hraðsuðuketilinn af eldhúsbekknum og fá meira vinnupláss.
Ég er líka með CUBE kerfið frá Quooker sem gerir kranann ennþá fjölhæfari. Með CUBE get ég fengið bæði kælt vatn og sódavatn beint úr sama krananum! Það er ótrúlega þægilegt að geta fyllt á vatnsglösin, fengið sér ískalt sódavatn eða útbúið drykki án þess að þurfa að geyma sódavatnsflöskur í ísskápnum. Með því að útbúa sódavatnið heima er maður líka að draga úr kaupum á einnota plastflöskum.
Það sem mér finnst sérstaklega gott við Quooker er hversu oft ég nýti mér hann yfir daginn. Hvort sem ég er að útbúa eftirrétti, sjóða kartöflur, elda pasta, fá mér kalt vatn eða útbúa drykki er ótrúlega þægilegt að hafa allt þetta aðgengilegt úr einum og sama krananum.
Svona þægindi gera ótrúlega mikið í annasömu eldhúsi, sérstaklega þegar mikið er um að vera fyrir jólin!
Svo finnst mér líka að gaman að nefna hversu fallegur kraninn er og passar einstaklega vel inn hér heima. Það er hægt að fá Quooker í mörgum mismunandi útfærslum og í mismunandi stíl.








Klístruð döðlukaka með heitri karamellusósu og vanillu ís
Döðlukaka
- 200 g steinlausar döðlur
- 250 ml sjóðandi vatn
- 100 g mjúkt smjör
- 150 g púðursykur
- 2 egg
- 175 g hveiti
- 1 tsk lyftiduft
- 1 tsk vanilludropar
- ½ tsk kanill
- ¼ tsk salt
Karamellusósa
- 100 g smjör
- 150 g púðursykur
- 200 ml rjómi
- 1 tsk vanilludropar
- Örlítið salt
Meðlæti
- Vanilluís (má skipta út fyrir þeyttan rjóma)
Aðferð
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir- og yfirhita. Smyrjið 6 stk lítil form sem eru 9 cm í þvermál og 5 cm á hæð (eða sambærilega stór).
- Setjiið döðlurnar í hitaþolna skál. Hellið sjóðandi heitu vatni yfir (ég notaði Quooker kranann minn sem gefur mér sjóðandi heitt vatn beint úr krananum) og látið standa í 10–15 mínútur. Maukið döðlurnar ásamt vatninu með töfrasprota eða matvinnsluvél.
- Þeytið smjör og púðursykur saman þar til blandan er orðin létt og ljós. Bætið eggjunum út í, einu í einu, og þeytið vel á milli. Bætið vanilludropunum saman við.
- Blandið hveiti, lyftidufti, kanil og salti saman í annarri skál.
- Bætið þurrefnunum og döðlumaukinu saman við smjörblönduna og blandið varlega saman.
- Hellið deiginu í formin og bakið í u.þ.b. 20 mínútur eða þar til kökurnar rétt er bökuð í gegn, passið að ofbaka alls ekki. Kakan á að vera rakamikil, mjúk og safarík.
- Á meðan kakan bakast er karamellusósan útbúin. Setjið smjör, púðursykur, rjóma, vanilludropa og salt í lítinn pott. Hitið að vægri suðu og látið malla í 3–5 mínútur þar til sósan hefur þykknað örlítið.
- Takið kökuna úr ofninum og stingið nokkur lítil göt í kökurnar með prjóni. Hellið u.þ.b. ⅓ af karamellusósunni yfir kökurnar á meðan þær eru enn volgar og leyfið þeim að draga sósuna í sig.
- Hvolfið kökuformunum á diska og fjarlægið formin. Berið fram volga með ríkulegri karamellusósu og góðri kúlu af vanilluís.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












