Þessir dásamlegu kókos- og karrýþorskhnakkar eru einn af þessum réttum sem maður smakkar og hugsar strax: Þetta verð ég að gera aftur! 😍
Dásamlega mjúkir og safaríkir þorskhnakkar í silkimjúkri kókoskarrýsósu með engifer, hvítlauk, lime og fersku kóríander. Sósan er svo ótrúlega bragðgóð, með hæfilegrum kryddhita, ferskleika og smá sætu frá kókosmjólkinni. Það er eiginlega ómögulegt að hætta að borða þennan rétt!
Ég nota þorskhnakkana frá Besti bitinn af þorskinum í þennan rétt, en þeir eru einstaklega góðir í svona uppskriftir þar sem fiskurinn fær að eldast rólega í bragðmikilli sósunni og verður dásamlega mjúkur og safaríkur.
Það besta er hvað þetta er einfalt! Allt eldað á einni pönnu og tekur stutta stund að útbúa. Ég mæli sérstaklega með að bera réttinn fram með góðum jasminhrísgrjónum sem draga í sig alla þessa dásamlegu sósu. Fullkominn hversdagsréttur sem er samt svo góður að hann sómir sér vel í matarboði líka!







Kókos karrý þorskhnakkar
- 500 g Besti bitinn af þorskinum – þorskhnakkar
- 1 laukur
- 1 rauð paprika
- 3 hvítlauksgeirar
- 2 msk rifið engifer
- 2 msk grænt karrý mauk
- 400 ml kókosmjólk
- 1 msk fiskisósa
- Safi úr ½ lime
- Salt og pipar
- 50 g babyleaf eða spínat
- 15 g ferskt kóríander
Aðferð
- Skerið laukinn og paprikuna smátt niður og steikið á pönnu. Rífið hvítlauksgeirana og engiferið út á pönnuna og steikið létt.
- Bætið græna karrý maukinu út á og bætið svo kókosmjólkinni út á pönnuna ásamt fiskisósu og lime safa. Saltið og piprið eftir smekk.
- Setjið þorskhnakkana ofan í sósuna á pönnunni og leyfið að malla svolítið.
- Bætið babyleaf út á pönnuna og blandið saman við, látið malla þar til þorskhnakkarnir eru eldaðir í gegn.
- Berið fram með fersku kóríander.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












