Linda Ben

Konfekt kleinuhringir

Recipe by
1 klst
Prep: 20 mín | Cook: 10 mín | Servings: 9 hringir

Þessi uppskrift var samin fyrir Kökublað Vikunnar.

_MG_1900

_MG_1884 _MG_1869

_MG_1888

Þessir konfekt kleinuhringir eru hreint út dásamlega góðir. Ef þér finnst kransakaka og lakkrís gott þá ertu í himnaríki með þessum hringjum. Lakkrísbragðið er þó alls ekki ráðandi heldur gefur æðislegan undirtón.

_MG_1890

Ég valdi að skreyta kleinuhringina með hvítu súkkulaði, grófu lakkrís dufti og brúðarslöri, það er þó alls ekki nauðsynlegt að skreyta þá þannig, notið heldur hugmyndaflugið og gerið eitthvað nýtt!

_MG_1893

Konfekt kleinuhringir

  • 350 g marsípan
  • 175 g sykur
  • 15 g eggjahvítur
  • 1 msk fínt lakkrísduft frá Johan Bulov
  • 200 g hvítt súkkulaði
  • 2 msk bragðlaus olía
  • 1 msk Gróft lakkrísduft frá Johan Bulov (skraut, má sleppa)

Aðferð:

  1. Stillið ofninn á 220C.
  2. Setjið marsípan og sykur í hrærivél og blandið vel saman.
  3. Setjið eggjahvíturnar útí og blandið saman við.
  4. Setjið lakkrísduftið útí blandið saman við.
  5. Notið mini kreinuhringjaform (bakki með 12 hringjum), setjið örlítinn flórsykur í hvern hring til að koma í veg fyrir að deigið festist.
  6. Skiptið deiginu þannig að hver hluti er um 60 g.
  7. Setjið fórsykur á borðið svo deigið festist ekki við það. Rúllið hverjum hluta fyrst í rúllu og tengið svo í hring þannig að deigið passar í formið. Bakið inn í ofni í 10 mín.
  8. Leyfið kleinuhringjunum að kólna að um það bil stofuhita og takið kleinuhringina svo upp úr. Ef þeir eru fastir í forminu, setjið formið í frysti í um það bil klukkutíma og náið þeim svo upp úr forminu varlega með hníf án þess að skaða hringina.
  9. Bræðið hvíta súkkulaðið yfir vatnsbaði og bætið olíunni út í. Dífið hverjum kleinuhring ofan í skál með hvíta súkkulaðinu og leggið hringina svo á grind.
  10. Skreytið hringina með grófu lakkrísdufti frá Johan Bulov og brúðarslöri (ekki æt blóm og þarf að fjarlægja áður en þeir eru borðaðir).

_MG_1886

Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben

Ég minni þig á að fylgjast með mér á Instagram en þar er ég oft að elda og baka og sýni “step-by-step” frá matseldinni. Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!

_MG_1889

Johan Bulov lakkrísinn fæst í Epal

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5