Linda Ben

Kraftmikið kjúklingasalat

Recipe by
25 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur

Hér höfum við æðislega gott og orkumikið kjúklingasalat sem er alveg stútfullt af hollustu.

Maður byrjar á því að elda sætu kartöflurnar og sveppina, svo sker maður restina af innihaldsefnunum niður og blandar öllu saman í skál. Kryddar svo með chillí olíu (eða annari olíu ef maður fýlar ekki sterkt), salti og pipar og smá meira af þurrkuðu chillí ef vill.

Þetta er alveg virkilega fljótlegur réttur og bráðhollt, alveg eins og við viljum hafa hlutina 👌🏻

Kraftmikið kjúklingasalat

Kraftmikið kjúklingasalat

Kínóa ofurskál með grænmeti og kjúkling

Kraftmikið kjúklingasalat

Kraftmikið kjúklingasalat

  • 3 foreldaðar kjúklingabringur
  • 1-2 forsoðnar rauðrófur
  • 1/2 sæt kartafla (eða ein lítil)
  • 75 g klettasalat
  • 2 dl bláber
  • 100 g sveppir
  • 1 msk sólblómafræ
  • 100 g rifinn mozzarella frá Örnu Mjólkurvörum
  • U.þ.b. 2 msk chillí olía (eða önnur ólífu olía ef þið viljið ekki hafa salatið sterkt, líka hægt að setja 1 msk chillí og 1 msk venjuleg olía)
  • Salt og pipar
  • Þurrkað chillí eftir smekk

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
  2. Skerið sætukartöfluna og sveppina í bita, setjið á smjörpappírsklædda ofnplötu, setjið olíu og salt&pipar yfir. Bakið í u.þ.b. 20 mín eða þar til kartöflurnar og sveppirnir eru mjúkir í gegn.
  3. Skerið kjúklingabringurnar og rauðrófuna niður í bita.
  4. Setjið sætu kartöflurnar, sveppina, kjúklingabringurnar, rauðrófuna, klettasalatið, bláberin, sólblómafræin og rifna mozzarellann í skál. Hellið chillí olíu yfir, kryddið með salti, pipar og chillí flögum (sleppið ef þið viljið ekki hafa salatið sterkt), blandið öllu vel saman og setjið í skálar.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Kraftmikið kjúklingasalat

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5