Linda Ben

Krispí hrísgrjón

Recipe by
30 - 40 mín

Þessi krispí hrísgrjón eru alveg ótrúlega góð og svo einföld að útbúa! Þau verða dásamlega stökk í ofninum og fá ljúffengt bragð af sesamolíu, sojasósu og hvítlauk.

Þau eru fullkomin til að toppa alls konar salöt, núðluskálar og aðra asíska rétti þar sem maður vill bæta við smá krönsi. Mér finnst þau líka sérstaklega góð í hrísgrjónaskálar með fersku grænmeti, avókadó og góðri dressingu.

Frábær leið til að gera einfalda rétti aðeins meira spennandi og líka sniðug leið til að nýta afgang af soðnum hrísgrjónum! 😍

Krispí hrísgrjón

Krispí hrísgrjón

  • 2 dl hrísgrjón, ósoðin
  • 1 msk. sojasósa
  • 1 msk. sesamolía
  • 1 tsk. hvítlaukskrydd

Aðferð:

  1. Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum þar til þau eru tilbúin. Kælið.
  2. Dreifið soðnu hrísgrjónunum á bökunarpappírsklædda ofnplötu.
  3. Bætið sojasósu, sesamolíu og hvítlaukskryddi saman við og blandið vel.
  4. Dreifið hrísgrjónunum jafnt yfir plötuna og bakið í u.þ.b. 20–30 mínútur, eða þar til þau eru orðin gyllt og stökk.
  5. Látið þau kólna án þess að hræra í þeim eftir bakstur.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Krispí hrísgrjón

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5