Linda Ben

Krispí hrísgrjónasalat með hnetusmjörssósu

Þetta salat er alveg ótrúlega gott! 😍 Stökk hrísgrjón, safaríkur kjúklingur, ferskt grænmeti, sýrður rauðlaukur og dásamleg hnetusmjörssósa koma hér saman í einstaklega bragðmiklu og girnilegu salati.

Það sem gerir salatið sérstaklega skemmtilegt eru krispí hrísgrjónin. Þau eru fyrst soðin og síðan bökuð í ofni með sojasósu, sesamolíu og hvítlaukskryddi þar til þau verða fallega gyllt og stökk. Þau gefa salatinu alveg dásamlega áferð og passa svo vel með mjúkum kjúklingnum og ferska grænmetinu.

Í salatið nota ég ferskt salat, salatblöndu og kóríander frá Vaxa. Mér finnst svo gott að nota fjölbreytt grænmeti og ferskar kryddjurtir í svona rétti, því það gefur bæði skemmtilega áferð, fallega liti og mikinn ferskleika.

Hnetusmjörssósan er svo algjörlega punkturinn yfir i-ið! Hún er bæði sæt, sölt og örlítið sterk, með góðri sýru frá hrísgrjónaedikinu. Sósan bindur öll hráefnin saman og gerir salatið einstaklega djúsí og bragðgott.

Þetta er fullkominn réttur í kvöldmatinn þegar mann langar í eitthvað ferskt og gott en um leið saðsamt. Það er líka hægt að undirbúa ýmsa hluta uppskriftarinnar með fyrirvara og setja salatið svo saman rétt áður en það er borið fram.

Ég mæli svo sannarlega með að prófa þetta! 💚

Krispí hrísgrjónasalat með hnetusmjörssósu

Krispí hrísgrjónasalat með hnetusmjörssósu

Krispí hrísgrjónasalat með hnetusmjörssósu

Krispí hrísgrjónasalat með hnetusmjörssósu

Krispí hrísgrjónasalat með hnetusmjörssósu

Krispí hrísgrjónasalat með kjúklingi og hnetusmjörssósu

Salat

  • 800 g úrbeinuð kjúklingalæri
  • Kjúklingakryddblanda
  • 1 agúrka
  • 3–4 gulrætur
  • 1 salathaus frá Vax
  • 90 g salatblanda frá Vaxa
  • 15 g ferskt kóríander frá Vaxa
  • Sýrður rauðlaukur (uppskrift hér fyrir neðan)
  • Krispí hrísgrjón (uppskrift hér fyrir neðan)
  • Hnetusmjörssósa (uppskrift hér fyrir neðan)

Sýrður rauðlaukur

  • 1 rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar (gott að nota mandólín ef þið eigið slíkt
  • 1 dl eplaedik
  • 1 msk. sykur
  • 2 dl heitt vatn

Krispí hrísgrjón

  • 2 dl hrísgrjón, ósoðin
  • 1 msk. sojasósa
  • 1 msk. sesamolía
  • 1 tsk. hvítlaukskrydd

Hnetusmjörssósa

  • 4 msk. hnetusmjör
  • 3 msk. sojasósa
  • 3 msk. hrísgrjónaedik
  • 1 msk. hunang
  • 1 msk. sesamolía
  • 2–3 hvítlauksgeirar
  • ¼–½ tsk. þurrkaðar chiliflögur
  • Heitt vatn til að þynna (magn fer eftir þykkt hnetusmjörsins)

Aðferð

  1. Byrjið á að útbúa sýrða rauðlaukinn. Skerið rauðlaukinn í mjög þunnar sneiðar og setjið í hreina krukku. Blandið eplaediki, sykri og heitu vatni saman og hellið yfir laukinn. Látið kólna og setjið síðan í ísskáp í a.m.k. 1 klukkustund.
  2. Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Látið þau kólna og gufa vel upp af þeim áður en þau eru bökuð.
  3. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir- og yfirhita. Setjið kjúklingalærin í eldfast mót og kryddið með kjúklingakryddblöndunni. Bakið í u.þ.b. 25 mínútur, eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn og hefur náð a.m.k. 74°C kjarnhita.
  4. Dreifið soðnu hrísgrjónunum á bökunarpappírsklædda ofnplötu. Bætið sojasósu, sesamolíu og hvítlaukskryddi saman við og blandið vel. Dreifið hrísgrjónunum jafnt yfir plötuna og bakið í u.þ.b. 20–30 mínútur, eða þar til þau eru orðin gyllt og stökk. Látið þau kólna án þess að hræra í þeim eftir bakstur.
  5. Útbúið hnetusmjörssósuna með því að setja hnetusmjör, sojasósu, hrísgrjónaedik, hunang og sesamolíu í skál. Rífið hvítlauksgeirana út í og bætið chiliflögunum saman við. Hrærið vel saman og bætið heitu vatni smám saman út í þar til sósan er orðin þykkfljótandi
  6. Skerið salatið niður og setjið í stóra skál ásamt salatblöndunni frá Vaxa. Skerið agúrkuna og gulræturnar í þunnar sneiðar eða strimla og bætið út í ásamt sýrða rauðlauknum.
  7. Bætið stökkum hrísgrjónunum og svolítilli hnetusmjörssósu saman við salatið. Blandið varlega saman og færið yfir á fallegt fat.
  8. Skerið kjúklinginn í strimla og raðið honum yfir salatið. Toppið með fersku, söxuðu kóríander og meiri hnetusmjörssósu.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Krispí hrísgrjónasalat með hnetusmjörssósu

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5