Linda Ben

Krönsí Eplakrisp

Það er eitthvað svo notalegt við ilminn af eplum og kanil sem fyllir eldhúsið á meðan þessi réttur bakast.

Þessi krönsí eplakrisp er einn af mínum uppáhalds eftirréttum þegar mig langar í eitthvað ekki of óhollt, einfalt en einstaklega gott. Safarík Pink Lady epli bakast þar til þau verða mjúk og sæt, á meðan stökki hafra- og hnetutoppurinn fær fallega gyllta áferð og dásamlegt bragð af kanil og vanillu.

Það besta við þessa uppskrift er hvað hún er fljótleg í undirbúningi. Borin fram volg með góðum vanilluís verður hún að algjörum sælkeradessert sem erfitt er að standast.

Þetta er svona eftirréttur sem passar hvenær þegar maður vill gera aðeins meira úr augnablikinu. Einfaldur, hlýlegur og ótrúlega góður, alveg eins og heimabakaður eftirréttur á að vera.

hollari krönsí epla krumble

hollari krönsí epla krumble

hollari krönsí epla krumble

hollari krönsí epla krumble

hollari krönsí epla krumble

hollari krönsí epla krumble

hollari krönsí epla krumble

hollari krönsí epla krumble

Krönsí eplakrisp

  • 4 stk Pink Lady epli
  • 100 g hafrar
  • 50 g möndlumjöl
  • 50 g valhnetur
  • 50 g pekanhnetur
  • 70 g smjör
  • 1 tsk vanilludropar
  • 2 tsk kanill
  • 1/4 tsk salt

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
  2. Smyrjið 24 cm form, skerið eplin í sneiðar og dreifið þeim um formið.
  3. Setjið hafra, möndlumjöl, saxaðar valhnetur og saxaðar pekanhnetur í skál.
  4. Bræðið smjörið og hellið því í skálina ásamt vanilludropum, kanil og salti.
  5. Blandið öllu vel saman og dreifið blöndunni jafnt yfir eplin.
  6. Setjið álpappír yfir formið og bakið með álpappír yfir í 30 mín. Takið álpappírinn af og bakið áfram í 20 mín.
  7. Leyfið eplakrispinu að kólna örlítið og berið svo fram t.d. með vanilluís.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

hollari krönsí epla krumble

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5