Linda Ben

Lakkríssmákökuterta með mjúkum marengstoppi

Recipe by
30 mín
| Servings: 10-12 manns

Hverjum hefði dottið í hug að hægt væri að útbúa svona dásamlega köku úr smákökudeigi?

Þessi lakkrís- og browniekaka með mjúkum marengstoppi er algjört sælgæti! Djúsí súkkulaði- og lakkrísbotn, mjúkur og léttur marengs og dásamlegur rjómi með örlitlu kakói yfir. Samsetningin er svo ótrúlega góð og kakan er bæði falleg og einstaklega girnileg!

Ég nota lakkríssmákökudeigið mitt sem fæst tilbúið í Krónunni og það gerir þessa köku svo ótrúlega einfalda í framkvæmd. Það þarf ekki einu sinni að baka botninn sérstaklega, heldur er deiginu einfaldlega þrýst í formið, marengsinum dreift yfir og allt bakað saman.

Mér finnst svo skemmtilegt að sýna ykkur hvað það er hægt að gera margt gott úr smákökudeigunum mínum, annað en að baka hefðbundnar smákökur, þó svo að þær standi auðvitað alltaf fyrir sínu!

Þessi kaka er fullkomin í næsta kaffiboð eða þegar ykkur langar að bjóða upp á eitthvað extra gott án þess að hafa mikið fyrir því. ❤️

Lakkrís og browniekaka með mjúkum marengstoppi

Lakkrís og browniekaka með mjúkum marengstoppi

Lakkrís og browniekaka með mjúkum marengstoppi

Lakkrís og browniekaka með mjúkum marengstoppi

Lakkrís og browniekaka með mjúkum marengstoppi

Lakkrís og browniekaka með mjúkum marengstoppi

Lakkríssmákökuterta með mjúkum marengstoppi

  • 400 g lakkríssmákökudeig Lindu Ben
  • 4 eggjahvítur
  • 150 g sykur
  • 200 ml rjómi
  • 1 msk kakó

Aðferð

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir- og yfirhita.
  2. Klæðið 22 cm kökuform með bökunarpappír. Þrýstið smákökudeiginu jafnt í botninn á forminu og sléttið úr því. Ekki forbaka botninn.
  3. Setjið eggjahvíturnar í hreina hrærivélarskál og byrjið að þeyta. Þegar þær byrja að freyða er sykrinum bætt smám saman út í. Þeytið áfram þar til marengsinn er orðinn þykkur og glansandi og myndar stífa toppa.
  4. Dreifið marengsinum jafnt yfir óbakaða smákökubotninn og sléttið úr honum með sleikju.
  5. Bakið í um 30 mínútur, eða þar til marengsinn hefur tekið fallegan lit og smákökubotninn er bakaður í gegn. Fylgist með kökunni undir lok bakstursins og lengið tímann eftir þörfum.
  6. Látið kökuna kólna alveg.
  7. Þeytið rjómann og dreifið honum yfir kælda kökuna.
  8. Sigtið örlitlu kakói yfir áður en kakan er borin fram.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

 

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5