Linda Ben

Lakkrístoppar með Gull Sett bitum

Recipe by
45 mín
| Servings: U.þ.b. 75 toppar

Lakkrístoppar eru algjör klassík í íslenskum jólabakstri og ég held að það sé varla til sá íslendingur sem hefur ekki smakkað þá einhvern tímann fyrir jólin! 🎄❤️ En nú ákvað ég að taka þessa góðu uppskrift og gefa henni aðeins nýtt og spennandi tvist!

Í stað þess að nota hefðbundið lakkrískurl setti ég Gull Sett bita frá Nóa Síríus í marengsinn og útkoman er alveg dásamleg! 😍 Stökkir að utan, mjúkir og seigir að innan, með ljúffengum bitum af karamellu súkkulaði og lakkrís sem gera hvern bita ómótstæðilegan.

Það besta er að uppskriftin er alveg ótrúlega einföld, aðeins þrjú hráefni og örfá handtök! Fullkomin leið til að gera eitthvað nýtt úr gömlu góðu jólaklassíkinni.

Ég mæli svo sannarlega með að þið prófið þessa útgáfu í jólabakstrinum í ár. Ég hef á tilfinningunni að hún eigi eftir að verða nýtt uppáhald á jólakökudisknum! 🍫✨

Lakkrístoppar með Gull Sett bitum

Lakkrístoppar með Gull Sett bitum

Lakkrístoppar með Gull Sett bitum

Lakkrístoppar með Gull Sett bitum

Lakkrístoppar með Gull Sett bitum

Lakkrístoppar með Gull Sett bitum

Lakkrístoppar með Gull Sett bitum

Lakkrístoppar með Gull Sett bitum

  • 3 eggjahvítur
  • 200 g púðursykur
  • 285 g Gull Sett bitar

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum, stillið á 150°C og undir yfir hita.
  2. Þeytið eggjahvíturar og þegar mjúkir toppar hafa myndast bætið þá sykrinum hægt og rólega út í og þeytið þar til eggjahvíturnar eru stífþeyttar.
  3. Skerið Gull Settið niður og blandið varlega saman við með sleikju.
  4. Notið tvær teskeiðar til þess að móta toppana, passið að hafa ágætis pláss á milli þar sem topparnir stækka í ofninum.
  5. Bakið í 17-18 mín.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Lakkrístoppar með Gull Sett bitum

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5