Lambakjöt í marokkóskri marineringu sem dekrar við bragðlaukana. Kjötið verður bragðmikið og ótrúlega bragðgott!
Marakóskt Lambakjöt
- 4 lamba file
- 1 tsk cumin
- 1 tsk papriku krydd
- 3 hvítlauksgeirar
- 1 tsk kóríanderfræ
- 1/2 tsk kanill
- 1/2 tsk engifer
- 1/2 tsk salt
- 1/4 tsk garam masala
- 1/2 tsk oreganó
- 1/2-1 dl ólífuolía
Aðferð:
- Setjið öll kryddin í mortel og merjið saman. Skerið hvítlaukinn og bætið honum út í, merjið vel saman við, hellið olíunni út í líka og blandið öllu saman.
- Skerið í fituna fjórar rendur, passið að skera ekki í kjötið sjálft. Þekjið lambakjötið í marineringunni og látið kjötið marinerast í minnsta kosti 4 klst til þess að fá sem mesta bragðið. Það er líka hægt að gera þetta kvöldið áður og láta kjötið marinerast inn í ísskáp en best að láta kjötið ná stofuhita áður en það er eldað.
- Steikið kjötið í á rifflaðri grillpönnu, setjið örlítið af olíu á pönnuna. Steikið hverja hlið þangað komnar eru fallegar línur í kjötið, passið að rífa ekki kjötið, leyfið því að steikjast lengur á pönnunni þangað til það losnar frá.
- Setjið kjötið inn í 180°C heitan ofninn með kjöthitamæli og takið kjötið út þegar það nær 62°C, látið kjötið standa örlítið við stofuhita áður en það er skorið.
Ég mæli með að bera lambakjötið fram með kúskús og agúrkusósu en það er einfalt að útbúa:
Kúskús
- 30 g smjör
- 1 laukur, fínt saxaður
- 2 hvítlauksgeirar
- 2 dl kúskús
- 4 dl kjúklingasoð
- 2 msk ferskt kóríander
- salt og pipar
Aðferð:
- Steikið laukinn upp úr smjörinu þangað til hann er orðin glær.
- Skerið hvítlaukinn eða pressið hann með hvítlaukspressu og setjið út á.
- Hellið kúskúsinu út á og hrærið saman við.
- Hellið kjúklingasoðinu út á og hitið að suðu.
- Takið af hitanum og setjið lokið á og látið standa í 5 mín.
- Hrærið kóríanderinu saman við, smakkið til með salti og pipar.
Agúrku kóríander sósa
- 2 msk majónes
- 2 msk 18% sýrður rjómi
- 1/2 agúrka, flysjuð að mestu og megnið af belgjunum fjarlægðir, skorin smátt niður.
- 1 stór lúka kóríander, smátt skorið
- 1 msk lime safi
- salt og pipar
Aðferð:
- Blandið öllu saman í skál, smakkið til með salti og pipar.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben
Ég minni þig á að fylgjast með mér á Instagram en þar er ég oft að elda og baka og sýni “step-by-step” frá matseldinni. Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: