- Meðal stórt lambalæri
- 8 hvítlauksgeirar
- Ferskt rósmarín
- ¾ dl Ólífuolía
- 1 msk ítölsk kryddblanda
- 1 tsk sítrónupipar
- 1 tsk salt
- 1 tsk paprika
- 8 stk bökunar kartöflur
- 5-6 hvítlauksgeirar
- 1 sítróna
- Skerið nokkur göt um allt lambalærið, skerið 3-4 hvítlauksgeira í grófar sneiðar og stingið þeim inn í götin ásamt rósmaríni. Setjið ólífu olíu í skál ásamt kryddum, blandið saman og berið olíuna svo á lambalærið, passið að setja vel inn í götin líka. Setjið lærið á bakka og lokið með plastfilmu, látið marinerast inn í kæli í a.m.k í 2 klst, helst yfir nótt.
- Takið lambalærið út úr ofninum og leyfið því að ná stofuhita áður en það er sett í ofninn.
- Kveikið á ofninum og stillið á 200C.
- Skolið kartöflurnar vel og vandlega, skerið í þær ⅔ niður með 2 mm millibili, passið að skera alls ekki kartöflurnar í sundur. Kryddið með salti og olífu olíu, nuddið þær þannig að olían og saltið fari niður í skurðina. Raðið kartöflunum í stórt eldfast mót í kringum lambalærið. Raðið hvítlauksgeirum og ferskum rósmarín stilkum um mótið líka. Bætið við meiri ólífu olíu og kryddum ef ykkur finnst vanta. Bakið inn í ofni í 1 klst og 20 mín en fylgist vel með, ef lærið byrjar að brúnast of mikið þá smelliði álpappír yfir. Leyfið lærinu að standa í 10 mín áður en það er skorið. Skreytið með fersku rósmarín og sítrónu berki.
Category: