Linda Ben

lambasteik elduð í einu fati með grænmeti og soðsósu

Recipe by
80 mín
Cook: Unnið í samstarfi við SS | Servings: 2-4 manns

lambasteik elduð í einu fati með grænmeti og soðsósu

Þessi lambasteik er hinn fullkomni helgarmatur og það besta er að allur rétturinn eldast saman í einu fati. Svo einffalt og ótrúlega ljúffengt.

Lambamiðlærissteikin er minni en hefðbundið lambalæri og því frábær kostur þegar eldað er fyrir færri. Steikin er um 1,2 kg með beini og er gefin upp fyrir 2–3 manns, en hjá okkur dugði hún vel fyrir tvo fullorðna og tvö börn og við áttum meira að segja smá afgang.

Steikin er bökuð með kartöflum, gulrótum, blaðlauk, heilum hvítlauk, sítrónu og fersku rósmaríni. Á meðan hún eldast blandast safinn úr kjötinu og kryddsmjörið saman við grænmetið og gefur því dásamlegt bragð og virkar sem ljúffeng soðsósa.

Einföld leið til að útbúa klassíska lambasteik með öllu tilheyrandi, án þess að þurfa að elda heilt lambalæri eða standa yfir mörgum pottum og pönnum. 🥰

lambasteik elduð í einu fati með grænmeti og soðsósu

lambasteik elduð í einu fati með grænmeti og soðsósu

lambasteik elduð í einu fati með grænmeti og soðsósu

lambasteik elduð í einu fati með grænmeti og soðsósu

lambasteik elduð í einu fati með grænmeti og soðsósu

lambasteik elduð í einu fati með grænmeti og soðsósu

Lambasteik elduð í einu fati með grænmeti og soðsósu

  • Lamba miðlærissteik með kryddsmjöri frá SS
  • Kartöflur
  • Gulrætur
  • Blaðlaukur
  • 1 heill hvítlaukur
  • ½ sítróna
  • FFerskt rósmarín
  • Ólífuolía
  • Salt og pipar
  • 1-2 dl vatn

Aðferð:

  1. Takið lamba miðlærissteikina út úr kæli klukkutíma fyrir eldun.
  2. Kveikið á ofninum og stillið hann á 200°C, undir og yfir hita.
  3. Setjið steikina í eldfast mót.
  4. Skerið kartöflurnar, gulræturnar og blaðlaukinn í bita og dreifið í kringum steikina.
  5. Skerið toppinn af hvítlauknum og setjið hvítlaukinn í formið.
  6. Skerið sítrónuna í sneiðar og raðið í formið ásamt fersku rósmaríni.
  7. Hellið ólífuolíu yfir grænmetið og hvítlaukinn og kryddið með salti og pipar. Setjið 1 dl af vatni í mótið.
  8. Bakið í ofni í 60-80 mín eða þar til kjarnhiti mælist 70°C.
  9. Látið hvíla í 15 mín við stofuhita áður en skorið er í kjötið.
  10. Notið soðið í botninum á fatinu eins og sósu.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

lambasteik elduð í einu fati með grænmeti og soðsósu

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5