Linda Ben

Letipönnukökur með súkkulaðibitum

Recipe by
25 mín

Letipönnukökur með súkkulaðibitum

Letipönnukökur eru fyrir okkur sem elskum nýbakaðar pönnukökur en nennum ekki alltaf að standa yfir eldavélinni og steikja eina í einu 😂🥞

Hér fer allt pönnukökudeigið einfaldlega í eitt form, súkkulaðidropum er dreift út í og svo sér ofninn um restina. Eftir um 20 mínútur er komin dásamlega mjúk og fluffy pönnukaka sem maður sker einfaldlega í bita og ber fram með hlynsírópi.

Ég nota Ljúffengu pönnukökublönduna frá Lindu Ben sem gerir þetta enn einfaldara, þú finnur mixið í bæði Krónunni og Hagkaup. Fullkomið í helgarbrunchinn, fyrir fjölskylduna eða einfaldlega þegar pönnukökulöngunin kemur en nennið er í lágmarki.

súkkulaðibita pönnukökur bakaðar í einu fati

súkkulaðibita pönnukökur bakaðar í einu fati

súkkulaðibita pönnukökur bakaðar í einu fati

súkkulaðibita pönnukökur bakaðar í einu fati

súkkulaðibita pönnukökur bakaðar í einu fati

súkkulaðibita pönnukökur bakaðar í einu fati

súkkulaðibita pönnukökur bakaðar í einu fati

Letipönnukökur með súkkulaðibitum

  • Ljúffengar pönnukökur – þurrefnablanda Lindu Ben
  • 1 egg
  • 250 ml mjólk
  • 60 g brætt smjör
  • 150 g súkkulaðibitar
  • Hlynsíróp

Aðferð

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið þurrefnablönduna í skál ásamt eggi, mjólk og bræddu smjöri. Blandið öllu saman.
  3. Bætið súkkulaðibitunum út í deigið og blandið því saman við.
  4. Hellið deiginu í smurt 23 × 36 cm form og bakið í u.þ.b. 20 mín. eða þar til pönnukakan er bökuð í gegn og fallega gyllt.
  5. Berið fram t.d. með hlynsírópi

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5