Linda Ben

Linguine með safaríkum kjötbollum

Recipe by
25 min
Cook: Unnið í samstarfi við SS | Servings: 3-4 manns

Þetta linguine með safaríkum kjötbollum er einfaldur og bragðgóður fjölskylduréttur sem er tilvalinn núna þegar skólarnir eru að fara af stað og rútínan að komast aftur í gang. 🍝❤️

Kjötbollurnar geri ég úr nautahakki, mozzarella og Wasa Protein+ hrökkbrauði sem gefur þeim bæði góða áferð og bragð ásamt því að gera þær prótein- og trefjaríkari. Ég baka bollurnar í ofni sem er einstaklega þægilegt þegar maður er í tímaþröng, en það er að sjálfsögðu líka hægt að steikja þær á pönnu. Það má einnig nota aðrar tegundir af Wasa hrökkbrauði í stað Protein+.

Með kjötbollunum ber ég fram Barilla Al Bronzo Linguine og Barilla Basilico pastasósu. Al Bronzo er hágæða pasta með hrjúfu yfirborði sem gerir það að verkum að sósan loðir einstaklega vel við pastað og útkoman verður alveg dásamleg.

Wasa Protein+ og nautahakkið fást í Bónus og Barilla vörurnar fást í Krónunni.

Einfaldur og góður hversdagsréttur sem öll fjölskyldan getur notið saman og akkúrat það sem maður þarf á annasömum virkum dögum. 🥰

Lady & the Tramp spagettí og kjötbollur

Lady & the Tramp spagettí og kjötbollur

Lady & the Tramp spagettí og kjötbollur

Lady & the Tramp spagettí og kjötbollur

Lady & the Tramp spagettí og kjötbollur

Lady & the Tramp spagettí og kjötbollur

Lady & the Tramp spagettí og kjötbollur

Lady & the Tramp spagettí og kjötbollur

Lady & the Tramp spagettí og kjötbollur

Linguine með safaríkum kjötbollum

Kjötbollur

  • 500 g nautahakk frá SS
  • 2 egg
  • 1 dl rifinn mozzarellaostur
  • 100 g Wasa Protein+ hrökkbrauð
  • 1msk. ítölsk kryddblanda
  • 1 tsk paprikukrydd
  • 1 tsk hvítlaukskrydd
  • Salt og pipar

Spagettí

  • 1 laukur
  • 2-3 hvítlauksgeirar
  • 800 g (2 krukkur) Barilla Basilico pastasósa
  • 300 g Barilla Al Bronzo Linguine
  • Baunasprettur eða basilíka

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið nautahakk, egg og mozzarellaost í skál. Brjótið hrökkbrauðið út í.
  3. Bætið kryddunum út í og blandið öllu vel saman.
  4. Mótið bollur úr hakkinu og raðið þeim á smjörpappírsklædda ofnplötu. Bakið í u.þ.b. 20 mín. eða þar til bollurnar eru eldaðar í gegn. Eldunartíminn fer eftir því hversu stórar bollurnar eru
  5. Sjóðið linguine samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum þar til það er al dente.
  6. Skerið laukinn smátt niður og steikið á pönnu þar til mjúkur. Rífið hvítlauksgeirana út á og steikið í stutta stund. Bætið pastasósunni út á og látið malla í nokkrar mínútur. Bætið linguine út í sósuna ásamt svolitlu af pastavatninu og blandið vel saman. Bætið kjötbollunum að lokum á pönnuna.
  7. Berið fram með baunasprettum eða ferskri basilíku.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

Lady & the Tramp spagettí og kjötbollur

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5