Linda Ben

Litríkt taco með djúsí ostahakki

Recipe by
20 mín
Cook: Unnið í samstarfi með Örnu Mjólkurvörur

Hér höfum við einstaklega ljúffengt taco sem þú átt örugglega eftir að elska og öll fjölskyldan líka. Hakkið er virkilega djúsí þar sem kryddosturinn er bræddur saman við það, svona eins og í djúsí pappapítunum sem örugglega margir kannast við.

Djúsí ostahakkið er svo toppað með ljúffengu mangó, fersku rauðkáli, granatepli, kóríander og ferskri lime og hvítlaukssósu.

Litríkt tacos með djúsí ostahakki Litríkt tacos með djúsí ostahakki

Litríkt tacos með djúsí ostahakki

Litríkt tacos með djúsí ostahakki

 

Litríkt taco með djúsí ostahakki

  • 6 stk vefjur
  • 1 laukur
  • 500 g nautahakk
  • 2 msk taco kryddblanda
  • 150 g kryddostur með hvítlauk
  • 1/4 rauðkálshaus
  • 1 mangó
  • 1/2 granatepli
  • Kóríander
  • 1 1/2 dl Grískt jógúrt
  • 1 hvítlauksrif
  • Smá salt
  • 2 lime (1/2 notað í sósuna, rest notuð til að kreista yfir tilbúið tacos)

Aðferð:

  1. Skerið laukinn niður og setjið á pönnuna, bætið nautahakkinu og taco kryddinu á pönnuna og steikið þar til eldað í gegn.
  2. Rífið kryddostinn yfir hakkið og blandið saman, steikið þar til osturinn hefur bráðnað saman við hakkið.
  3. Skerið rauðkál í ræmur, mangó í teninga og náið granateplafræjunum út úr granateplinu.
  4. Blandið saman grísku jógúrti, safa úr 1/2 lime, pressuðu hvítlauksrifi og smá salti.
  5. Hitið vefjurnar og setjið fyrst hakkið á þær, því næst rauðkál, mangó, granateplakjarna og svo sósuna. Setjið svo kóríander yfir.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Litríkt tacos með djúsí ostahakki

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5