Linda Ben

Ljúffeng frönsk lauksúpa

Recipe by
45 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Innnes

Ljúffeng frönsk lauksúpa

Það er fátt betra á köldum dögum en rjúkandi heit frönsk lauksúpa með vel af bráðnum, gylltum osti yfir. Laukurinn er látinn karamelliserast rólega í smjöri þar til hann verður mjúkur, sætur og bragðmikill og er síðan soðinn með hvítvíni, timjani og góðum nautakrafti.

Súpunni er svo hellt í eldfastar skálar, ristuðu baguette-brauði raðað yfir og toppað með vel af osti áður en allt fer inn í ofn. Útkoman er dásamlega bragðmikil og notaleg súpa með gylltum ostahjúp. Algjörlega fullkominn haust- og vetrarmatur.

Ljúffeng frönsk lauksúpa

Ljúffeng frönsk lauksúpa

Ljúffeng frönsk lauksúpa

Ljúffeng frönsk lauksúpa

Ljúffeng frönsk lauksúpa

Ljúffeng frönsk lauksúpa

Ljúffeng frönsk lauksúpaLjúffeng frönsk lauksúpa

Ljúffeng frönsk lauksúpa

Ljúffeng frönsk lauksúpa

  • 1 kg laukur
  • 3 msk smjör
  • 3-4 hvítlauksgeirar
  • 2 msk hveiti
  • 1 ½ dl hvítvín, ég notaði Muga Blanco Rioja
  • 1 ½ l vatn
  • 1 ½ msk nautakraftur
  • 1 tsk Worcestershire sósa
  • 1 lárviðarlauf
  • Nokkrir stönglar ferskt timjan
  • Salt og pipar eftir smekk
  • Baguette
  • Rifinn ostur

Aðferð:

  1. Saxið laukinn smátt. Bræðið smjörið í stórum potti og steikið laukinn rólega við vægan til miðlungshita. Látið hann malla og karamelliserast í u.þ.b. 30–40 mínútur, eða þar til hann er orðinn mjúkur og fallega gullinbrúnn. Hrærið reglulega og passið að laukurinn brenni ekki.
  2. Rífið hvítlauksgeirana út í pottinn og steikið létt með lauknum.
  3. Bætið hveitinu út í og hrærið vel saman við. Steikið í u.þ.b. 1 mínútu.
  4. Hellið hvítvíninu út í og hrærið vel í botninum á pottinum. Látið malla í nokkrar mínútur.
  5. Bætið vatni, nautakrafti, Worcestershire-sósu, lárviðarlaufi og fersku timjani út í. Látið súpuna malla rólega í u.þ.b. 10–15 mínútur og smakkið til með salti og pipar. Fjarlægið lárviðarlaufið og timjanstönglana.
  6. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir- og yfirhita.
  7. Hellið súpunni í eldfastar súpuskálar. Mínar eru 12 × 6 cm.
  8. Skerið baguette-brauðið í sneiðar og ristið þær. Leggið brauðsneiðarnar ofan á súpuna og toppið með vel af rifnum osti. Bakið í ofni í u.þ.b. 15–20 mínútur, eða þar til osturinn er bráðinn og fallega gylltur.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5