Ljúffeng hunangs kaka með fíkju rjómaostakremi
- 115 g smjör
- 1 ¾ dl sykur
- 2 egg
- 3 ½ dl hveiti
- 1 tsk lyftiduft
- ½ tsk kanill
- ½ tsk salt
- 1 ¼ dl súrmjólk
- ½ dl hunang
- 1 tsk vanilludropar
Fíkju rjómaostakrem
- 100 g smjör
- 100 g rjómaostur
- 300 g flórsykur
- Bleika kjötið innan úr 2 ferskum fíkjum
- 6-8 ferskar fíkjur
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C.
- Þeytið saman smjör og sykur þar til létt og ljóst. Bætið eggjunum út í, einu í einu og hrærið á milli.
- Blandað saman þurrefnum í eina skál og blautum hráefnum í aðra skál (súrmjólk, hunang og vanilludropar). Setjið helminginn af þurrefnunum út í eggjablönduna og helminginn af blautu hráefnunum, hrærið varlega saman og klárið svo að blanda öllu saman.
- Smyrjið 23 cm smelluform með smjöri og hellið blöndunni ofan í, bakið í u.þ.b. 35 mín eða þar til kakan er bökuð í gegn.
- Kælið kökuna og gerið kremið tilbúið með því að þeyta saman smjör og rjómaost þar til létt og ljós, bætið því næst flórsykrinum út í og kjötinu innan úr fíkjunum. Þeytið þar til mjög mjúkt og setjið ofan á kökuna frekar þykkt lag af kremi.
- Skerið fíkjurnar í 4 hluta hvora og raðið þeim ofan á kökuna.
Ef þú prófar þessa uppskrift, þá þætti mér svo vænt um að heyra hvernig smakkast! Skildu endilega eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben
Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!
Ykkar, Linda Ben
Category: