Dásamlega bragðmikil og djúsí kalkúnafylling með döðlum, sveppum, skinku og jalapenó sem passar fullkomlega með hátíðarkalkúninum.
Döðlurnar gefa fyllingunni ljúffenga sætu sem tónar einstaklega vel við söltu skinkuna og mildan hitann frá jalapenóinu. Kalkúnakryddið frá Pottagöldrum gefur fyllingunni svo dásamlegt kryddað hátíðarbragð og bindur öll hráefnin vel saman.
Fyllingin er bökuð sér í eldföstu móti þannig að hún verður fallega gullinbrún og örlítið stökk að ofan en mjúk og safarík að innan.
Einstaklega ljúffengt meðlæti með hátíðarmatnum sem ég mæli svo sannarlega með að þið prófið!




Kalkúnafylling með döðlum
- 100 g smjör
- 2 laukar
- 600 g sveppir
- 200 g sellerí
- 2-3 msk kalkúnakrydd frá Pottagöldrum
- 500 g góð skinka
- 100 g döðlur
- 1 ferskur jalapenó
- 270 g brauð
- 5 stór egg
- 3½ dl rjómi
- 1 tsk pipar og salt eftir smekk
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir- og yfirhita.
- Bræðið smjörið í stórum potti.
- Skerið laukinn, sveppina, selleríið, skinkuna, döðlurnar og jalapenóið smátt niður.
- Steikið laukinn létt upp úr smjörinu þar til hann byrjar að mýkjast. Bætið sveppunum, selleríinu, skinkunni, döðlunum, jalapenóinu og kalkúnakryddinu út í pottinn. Leyfið að malla í u.þ.b. 10 mínútur og hrærið reglulega.
- Skerið skorpuna af brauðinu og skerið það í litla teninga. Bætið brauðteningunum út í pottinn og blandið öllu vel saman.
- Hrærið eggin og rjómann létt saman og blandið saman við brauðblönduna. Kryddið með salti og pipar.
- Smyrjið eldfast mót með smjöri og setjið fyllinguna í mótið.
- Bakið í u.þ.b. 45 mínútur eða þar til fyllingin er fallega gullinbrún.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar




