Þessi kaka er fyrir alla sem elska góða kexköku 😍
Mjúk og djúsí vanillukaka full af grófmöluðu Noir kexi sem verður næstum eins og chewy cookie brownie í áferðinni og svo toppuð með silkimjúku Noir smjörkremi sem er alveg hættulega gott.
Kexið mýkist aðeins inni í kökunni við baksturinn og gefur henni ótrúlega góða áferð og djúpt súkkulaðibragð á meðan kremið verður létt, loftmikið og fullt af Noir molum. Þetta er svona kaka sem lítur út fyrir að vera einföld en fólk fær alveg smá „vá“ moment þegar það smakkar hana.
Fullkomin kaka í afmæli, saumó, helgarkaffið eða bara þegar mann langar í eitthvað extra gott með kaffibollanum ☕🍪
Og svo er hún líka svo einföld að gera með Ljúffeng vanilluköku þurrefnablöndunni minni sem fæst í Krónunni og Hagkaup.









Ljúffeng Noir kaka
- 1pakki Ljúffeng vanillukaka Lindu Ben – þurrefnablanda
- 3 egg
- 1 dl vatn
- 1 ½ dl bragðlítil olía
- 240 g Noir kex frá Frón
Noir Smjörkrem
- 250 g mjúkt smjör
- 250 g flórsykur
- 1 tsk vanilludropar
- 120 g Noir krex frá Frón
- 1 dl rjómi
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
- Setjið þurrefnablönduna í skál ásamt eggjum, vatni og olíu. Hrærið öllu vel saman.
- Grófmyljið kexið niður og bætið ofan í skálina, blandið saman við, deigið verður mjög stíft.
- Smyrjið 30×40 cm form (eðasambærilega stórt) og pressið deigið offan í formið, bakið í u…b. 15 mín eða þar til kakan er bökuð í gegn.
- Kælið kökuna og útbúið kremið.
- Setjið mjúkt krem í hrærivélaskál og þeytið þar til létt og mjúkt, bætið flórsykrinum út í og þeytið þar til afar loftmikið og létt. Bætið kexinu ofan í og þeytið vel, bætið svo rjómanum út í og þeytið meira þar til mjúkt, loftmikið og gott.
- Smyrjið kreminu á kökuna og skreytið með Noir kexi.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












