Ég hef verið mikill aðdáandi marsípans frá því ég man eftir mér, ég elska t.d. marsípan molana í Nóa konfektinu og kransakökur.
Ég rakst svo á uppskrift á netinu af einfaldri möndluköku með marsípani.
Allir marsípan aðdáendur munu elska þessa köku. Kakan er þétt, bragðið er ljúft og uppskriftin einföld, þvílíkur unaður!
Innihald:
- 250 g marsípan
- 250 g smjör
- 150 g sykur
- 1/4 tsk möndludropar
- 1/4 tsk vanilludropar
- 6 stór egg
- 150 hveiti
- 1 tsk lyftiduft
Aðferð:
- Hitið ofninn í 170°C
- Marsípan, smjör og sykur eru sett í matvinnsluvél og blandað vel saman.
- Droparnir eru settir út í og blandað.
- Eitt egg er sett út í blönduna í einu og blandað mjög vel saman á milli.
- Að lokum er hveitinu og lyftiduftinu bætt út í og blandað vel.
- Ég setti deigið í 18 cm smurt hringform, kakan varð þannig há og flott.
- Bakið kökuna í 40-50 mín
Ég valdi að smyrja kökuna með bleiku glassúri og fannst það fullkomna möndluköku fýlinginn.
Innihald:
- 250 g flórsykur
- 3 msk mjólk
- 1 dropi ljósbleikur matarlitur
Aðferð:
- Blandið öllum innihaldsefnum saman og smyrjið á kökuna
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category:
Uppáhalds kakan mín, ég hef ekki tölu á þvi hvað ég hef gert hana oft!