Linda Ben

Ljúffeng Súkkulaðiskúffukaka

Ljúffeng Súkkulaðiskúffukaka

Ljúffeng Súkkulaðiskúffukaka

Ljúffeng Súkkulaðiskúffukaka

Ljúffeng Súkkulaðiskúffukaka

Ljúffeng Súkkulaðiskúffukaka

Ljúffeng Súkkulaðiskúffukaka

Ljúffeng Súkkulaðiskúffukaka

  • 500 g Linda Ben Ljúffeng súkkulaðikaka þurrefnablanda
  • 3 egg
  • 150 g brætt smjör/150 ml bragðlítil olía
  • 1 dl vatn
  • 4 stk páskaegg nr 1 frá Nóa Síríus
  • Súkkulaðiperlur frá Nóa Síríus

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið þurrefnablönduna, egg, brætt smjör/olíu og vatn í skál. Hrærið rólega saman í 3-4 mínútur eða þar til deigið hefur samlagast og orðið glansandi.
  3. Smyrjið 20×30 cm form og hellið deiginu í formið. Bakið í u.þ.b. 25 mín eða þar til kakan er bökuð í gegn.
  4. Kælið að stofuhita og útbúið kremið á meðan. Uppskriftin er hér fyrir neðan.
  5. Smyrjið kreminu á kökuna og skreytið með páskaeggjum nr 1 og súkkilaðiperlum

Ljúffenga súkkulaðikremið

  • 300 g smjör
  • 150 g rjómaostur
  • 500 g flórsykur
  • 50 g Síríus kakóduft
  • 2 tsk vanilludropar
  • 1/2 dl sterkt kaffi (má skipta út fyrir 1/2 dl rjóma)

Aðferð:

  1. Hrærið smjörið þar til það er létt og ljóst.
  2. Bætið rjómaostinum saman við og því næst flórsykrinum, kakóinu, hrærið þar til létt og loftmikið.
  3. Bætið vanilludropunum og kaffinu út í, hrærið þar til silkimjúkt.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5