Linda Ben

Ljúffeng sveppasúpa

Recipe by
30 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur | Servings: 4-6 manns

Ljúffeng sveppasúpa sem er einstaklega bragðgóð.

Þessi uppskrift er ný útfærsla af klassískri uppskrift á síðunni: Einföld og ljúffeng sveppasúpa. Sú uppskrift er ein af elstu á síðunni og komið tími til að taka þá uppskrift aðeins í gegn, taka nýjar myndir og athuga hvort það væri eitthvað í henni sem mætti betur fara. Það var nú ekki mikið sem þurfti að breyta í uppskriftinni sjálfri nema ég ákvað að taka timjanið ekki upp úr áður en ég maukaði súpuna. Það gerir það að verkum að hún verður örlítið græn en ennþá bragðmeiri fyrir vikið. Ég setti svo ögn meiri rjóma út í hana, það er aldrei verra.

Þessi súpa er að mínu mati það góð að hún hentar afskaplega vel sem forréttur við fínni tilefni, sem og sem aðalréttur með brauði hversdags.

Einföld og ljúffeng sveppasúpa

Einföld og ljúffeng sveppasúpa

Ljúffeng sveppasúpa

Ljúffeng sveppasúpa

Einföld og ljúffeng sveppasúpa

  • 900 g sveppir
  • 60 g smjör
  • klípa af salti
  • 1 laukur
  • 1 ½ msk hveiti
  • 2 hvítlauksgeirar
  • 1 lítið búnt timjan
  • 1 líter kjúklingasoð
  • 400 ml rjómi frá Örnu Mjólkurvörum
  • salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Skerið sveppina niður í sneiðar.
  2. Bræðið smjörið í stórum potti og setjið sveppina í pottinn ásamt klípu af salti. Mikill vökvi mun myndast út frá sveppunum og því þarf ekki að setja meira smjör. Steikið sveppina í nokkrar mín þar til þeir eru mjúkir í gegn. Takið um það bil 1 msk af sveppum frá og geymið til að skreyta súpuna á eftir.
  3. Á meðan sveppirnir steikjast þá skeriði niður laukinn, setjið svo í pottinn og steikið hann ásamt sveppunum.
  4. Setjið hveitið í pottinn og hrærið saman við, steikið í um það bil 2 mín til að taka hrábragðið af hveitinu.
  5. Setjið timjan út í pottinn ásamt því að rífa hvítlauksgeirana út í.
  6. Hellið kjúklingasoðinu (vatn+kjúklingakrafur u.þ.b. 1-2 teningar) út í pottinn og sjóðið allt saman í u.þ.b. 10 mín.
  7. Maukið súpuna með töfrasprota þangað til hún er orðin mjög fínt maukuð.
  8. Hellið rjómanum út í og hitið að suðu. Kryddið með salt og pipar eftir smekk.
  9. Setjið sveppina út á sem voru teknir frá áðan og berið fram. Einnig er hægt að skreyta með timjan.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar

 

Ljúffeng sveppasúpa

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5