Hér höfum við svo ljúffenga útgáfu af klassísku vanillukökunni minni. Vanillukakan er einstaklega fljótleg og einföld að útbúa þar sem hún er útbúin úr Vanillukökumixinu mínu. Kökumixin mín eru fáanleg í öllum Krónuverslunum um land allt.
Kremið er gert ómótstæðilegt með hvítu súkkulaði og spautað á kökuna í stórum doppum. Sítrónu curdi er svo dreift yfir kremið, það passar alveg svakalega vel með vanillukökunni, gefur henni ferskan og vorlegan blæ.
Ljúffeng vanillukaka með hvíttsúkkulaði og sítrónukremi
- 500 g Linda Ben Ljúffeng vanillukaka þurrefnablanda
- 3 egg
- 150 g brætt smjör/150 ml bragðlítil olía
- 1 dl vatn
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.
- Setjið þurrefnablönduna, egg, brætt smjör/olíu og vatn í skál. Hrærið rólega saman í 3-4 mínútur eða þar til deigið hefur samlagast og orðið glansandi.
- Smyrjið tvö 20 cm smelluform og skiptið deiginu á milli formanna. Bakið í u.þ.b. 25 mín eða þar til kökurnar eru bakaðar í gegn.
- Kælið botnana að stofuhita og útbúið kremið á meðan. Uppskriftin er hér fyrir neðan.
Hvíttsúkkulaði og sítrónukrem
- 400 g mjúkt smjör
- 500 g flórsykur
- 200 g Síríus hvítt súkkulaðidropar
- 1 dl rjómi
- 200 g Sítrónu Curd (fæst tilbúið í mörgum matvöruverslunum)
Aðferð:
- Bræðið saman hvítt súukkulaði og rjóma, kælið blönduna.
- Hrærið smjörið þar til það er létt og ljóst.
- Bætið flórsykrinum saman við og hrærið þar til létt og loftmikið.
- Bætið hvítsúkkulaðibráðinni út í og hrærið þar til silkimjúkt.
- Setjið kremið í sprautupoka og sprautið mörgum stórum doppum á neðri kökubotninn, setjið vel af sítrónu curd yfir, leggið seinni kökubotninn yfir og sprautið krremi á hann og setjið svo sítrónu curd yfir.
- Skreytið með berjum.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: