Linda Ben

Ljúffenga humarsúpan sem er einfaldari en þig grunar

Recipe by
30-40 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur | Servings: 5 manns

Ég elska humarsúpur og sovna þegar ég fer að pæla í því þá þekki ég ekki þá manneskju sem þykir humarsúpa ekki góð… þetta er bara eitt af því sem allir elska held ég.

Þessi humarsúpa er einstaklega bragðgóð, kraftmikil og silkimjúk.

Hún er ekki þykkt með smjörbollu eins og svo margar, heldur en grænmetið maukað sem sett er í hana og það gerir hana þykka og góða.

Uppskriftin miðast við um það bil 5 manns.

Humarsúpa einföld og bragðgóð

Ljúffenga humarsúpan sem er einfaldari en þig grunar

  • 1 stk blaðlaukur, miðju hlutinn
  • 3 stk gulrætur
  • 1 stk sellerístilkur
  • 2 stk rauðar paprikur
  • 1-2 stk hvítlauksgeiri (einn stór, annars tveir)
  • 1 ½ msk tómatmauk
  • 1 ½ tsk madras karrý
  • 3 msk fljótandi humarkraftur
  • 1 ½ stk fiskikraftur
  • 1 líter vatn
  • 400 ml dós kókosmjólk
  • 2 dl hvítvín
  • 250 ml rjómi
  • u.þ.b. 800 g skelflettur humar
  • Salt og pipar
  • 250 ml þeyttur rjómi
  • Fersk steinselja

Aðferð:

  1. Skerið allt grænmetið niður fyrir utan hvítlaukinn, setjið olíu í stóran pott og steikið grænmetið á meðal hita þar til það er farið að mýkjast. Skerið þá niður hvítlaukinn og bætið honum út á ásamt karrý og tómatmauki. Bætið vatninu, kókosmjólkinni og hvítvíninu í pottinn og maukið grænmetið saman við með töfrasprota. Látið sjóða.
  2. Þegar súpan hefyr soðið saman rólega í u.þ.b. 5 mín bætið þá kraftinum saman við og haldið áfram að sjóða í nokrar mín.
  3. Bætið því næst út í rjómanum og hitið að suðu. Setjið humarinn út í súpuna, passið að láta súpuna ekki sjóða eftir að humarinn hefur verið settur út í. Smakkið til með salti og pipar.
  4. Berið fram með þeyttum rjóma og ferskri steinselju.

Humarsúpa einföld og bragðgóð

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5