Þetta ljúffenga eggaldinlasagna er alveg dásamlega gott og fullkominn réttur á köldum haust- og vetrarkvöldum. Hér koma þunnar, mjúkar eggaldinsneiðar í stað hefðbundinna lasagnaplatna og á milli þeirra er bragðmikil nautahakks- og tómatsósa, silkimjúk ostafylling og nóg af bráðnum mozzarella.
Leyndarmálið á bak við góða bragðið er rauðvínið sem gefur kjötsósunni dásamlega fyllingu og dýpt. Ég nota pastasósu með hvítlauk og kryddjurtum sem gerir eldamennskuna einstaklega einfalda án þess að þurfa að gefa neitt eftir í bragðinu.
Eggaldinið verður dásamlega mjúkt í ofninum og passar ótrúlega vel með safaríkri kjötsósunni og rjómakenndu ostafyllingunni. Útkoman er matarmikið, bragðgott og einstaklega girnilegt lasagna sem ég mæli svo sannarlega með að þið prófið! ❤️






Ljúffengt eggaldin lasagna
- 2 stór eggaldin (eða 3 minni)
- 600 g nautahakk
- 1 laukur
- 3 hvítlauksrif
- 2 msk ólífuolía
- 200 ml rauðvín – ég notaði Muga
- 680 g pastasósa með hvítlauk og kryddjurtum – ég notaði Hunt’s
- 1 tsk oregano
- 1 tsk þurrkuð basilíka
- Salt og pipar
Ostafylling
- 250 g ricotta
- 150 g rifinn mozzarella
- 60 g rifinn parmesan
- 1 egg
Ofan á
-
100 g rifinn mozzarella
Aðferð
- Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir- og yfirhita. Skerið eggaldinin langsum í um 5 mm þunnar sneiðar. Raðið á bökunarplötur, penslið með ólífuolíu og kryddið með salti. Bakið í 15–20 mínútur þar til þau eru mjúk og farin að taka lit.
- Á meðan eggaldinin bakast er laukurinn skorinn smátt og steiktur á stórri pönnu. Bætið nautahakkinu út á og brúnið vel. Bætið hvítlauk og pastasósunni út á og steikið í 1–2 mínútur.
- Hellið rauðvíninu yfir og látið sjóða niður um það bil til helminga. Bætið oregano og basilíku saman við. Látið malla án loks í 15–20 mínútur þar til sósan er orðin þykk. Smakkið til með salti, pipar og örlitlu hunangi ef þarf.
- Hrærið saman ricotta, mozzarella, parmesan og eggi í skál.
- Setjið þunnt lag af kjötsósu í botninn á eldföstu móti, um 20 × 30 cm. Raðið eggaldinsneiðum yfir og síðan ostasósu. Endurtakið þar til hráefnin klárast.
- Endið á kjötsósu og dreifið mozzarella yfir.
- Bakið við 190°C í um 20 mínútur eða þar til osturinn er fallega gylltur og lasagnað bubblar.
- Látið standa í 10–15 mínútur áður en skorið er í það.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












