Þessi æðislega góði boost drykkur er stútfullur af orkubætandi vítamínum og veitir okkur smá sólskyn í drykkjarformi í líkamann.
Mangó og kókos smoothie, uppskrift:
- 1 dl frosið mangó
- 1 lítill banani eða hálfur stór
- ½ dl kókosflögur
- 1 msk kókosolía
- 250 ml kókosvatn (líka hægt að nota venjulegt vatn)
Aðferð:
- Setjið öll hráefni í Nutribullet eða blandara og blandið þangað til allt er orðið að drykk.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu hana á Instagram með #lindulostæti
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Fyrir áhugasama:
Category: