Linda Ben

Marengssmákökur með súkkulaði og karamellukurli

Recipe by
1 klst og 30 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Nóa Síríus

Dásamlega góðar marengssmákökur með súkkulaði og karamellukurli sem eru jafn fallegar og þær eru ljúffengar!

Kökurnar eru léttar og stökkar að utan með ljúffengu súkkulaði sem er hrært varlega saman við marengsinn svo úr verður fallegt marmaramynstur. Síríus sælkerabaksturs karamellukurlið setur svo punktinn yfir i-ið með góðu karamellubragði og skemmtilegri áferð.

Það skemmtilega við þessar kökur er hvað þær eru einfaldar í framkvæmd en líta samt einstaklega sparilega út. Engar tvær kökur verða alveg eins og það er einmitt hluti af sjarmanum við þær.

Algjört sælgæti sem er tilvalið að bæta við jólasmákökuúrvalið í ár!

Súkkilaði marengssmákaka með karamellukurli

Súkkilaði marengssmákaka með karamellukurli

Súkkilaði marengssmákaka með karamellukurli

Súkkilaði marengssmákaka með karamellukurli

Súkkilaði marengssmákaka með karamellukurli

Marengssmákökur með súkkulaði og karamellukurli

  • 4 eggjahvítur
  • ¼ tsk cream of tartar
  • ¼ tsk salt
  • 250 g sykur
  • 200 g Síríus suðusúkkulaði
  • 100 g Síríus sælkerabaksturs karamellukurl

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 120°C, undir- og yfirhita.
  2. Setjið eggjahvíturnar í tandurhreina skál ásamt cream of tartar og salti. Þeytið þar til byrjar að freyða. Bætið sykrinum saman við smám saman og þeytið þar til marengsinn er orðinn glansandi og stífir toppar hafa myndast.
  3. Setjið væna skeið af marengs á bökunarplötu klædda smjörpappír og myndið litla dæld í miðjuna með bakhlið skeiðarinnar. Endurtakið þar til allur marengsinn hefur verið notaður. Passið að hafa gott pláss á milli því kökurnar stækka mikið í ofinum.
  4. Bræðið suðusúkkulaðið yfir vatnsbaði og leyfið því að kólna örlítið. Setjið u.þ.b. 1 msk. af bræddu súkkulaði í dældina á hverri marengsköku. Notið tannstöngul eða grillpinna til að blanda súkkulaðinu varlega saman við marengsinn þannig að fallegt marmaramynstur myndist. Stráið karamellukurli yfir.
  5. Bakið í 1 klst. og leyfið kökunum að kólna alveg áður en þær eru teknar af smjörpappírnum.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5