Linda Ben

Marengstertukrans með smá Nóa kroppi og myntusúkkulaðisósu

Recipe by
2 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Nóa Síríus | Servings: U.þ.b. 12 manns

Marengstertukrans með smá Nóa kroppi og myntusúkkulaðisósu er hátíðleg og jólaleg marengsterta sem er kjörið að smella í á aðventunni.

Marengstertukrans með mini Nóa kroppi og piparmyntusúkkulaðisósu

Marengstertukrans með mini Nóa kroppi og piparmyntusúkkulaðisósu

Marengstertukrans með mini Nóa kroppi og piparmyntusúkkulaðisósu

Marengstertukrans með mini Nóa kroppi og piparmyntusúkkulaðisósu

Marengstertukrans með mini Nóa kroppi og piparmyntusúkkulaðisósu

Marengstertukrans með mini Nóa kroppi og piparmyntusúkkulaðisósu

Marengstertukrans með mini Nóa kroppi og piparmyntusúkkulaðisósu

Marengstertukrans með smá Nóa kroppi og myntusúkkulaðisósu

  • 4 eggjahvítur
  • ¼ tsk cream of tartar
  • ¼ tsk salt
  • 60 g púðursykur
  • 200 g sykur
  • 500 ml rjómi – notað á tveimur stöðum í uppskriftinni, skipt í 400 ml og 100 ml
  • 150 g smá Nóa Kropp
  • 200 g Síríus suðusúkkulaði með myntubragði
  • Skraut: Granateplakjarnar og ferskt rósmarín

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 140°C og undir+yfir hita.
  2. Setjið eggjahvítur í tandurhreina skál ásamt cream of tartar og salti, þeytið þar til byrjar að freyða. Bætið þá púðursykrinum og sykrinum saman við rólega og þeytið þar til eggjahvíturnar ná alveg stífum toppum.
  3. Teiknið 30 cm hringi á smjörpappír og snúið við smjörpappírnum svo pennastrikið snúi niður.
  4. Setjið marengsdeigið í sprautupoka með stórum opnum stjörnustút. Sprautið nokkra hingi á pennastrikið svo myndist krans. Bakið í 50 mín og slökkvið þá á ofninum en ekki taka botnana úr ofninum fyrr en þeir eru orðinir alveg kaldir. Hægt er að gera botninn með allt að viku fyrirvara.
  5. Setjið myntusúkkulaðið í pott og bræðið með 1 dl rjóma, leyfið blöndunni að kólna.
  6. Þeytið rjómann, setjið 1 msk af rjóma á kökudiskinn undir marengsinn svo að hann haldist betur á sínum stað á diskinum. Bætið smá Nóa Kroppinu út í og blandið saman með sleikju.
  7. Setjið rjómann ofan á marengsinn, dreifið kældri súkkulaðisósunni yfir rjómann.
  8. Skreytið með granateplakjörnum og rósmarín.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5