Linda Ben

Marmarakaka með besta súkkulaði kreminu

Marmarakaka með besta súkkulaði kreminu er svo góð kaka, svolítið þétt og alls ekki of sæt. Súkkulaðikremið ofan á gerir hana svo að sjálfsögðu algjörlega ómótstæðilega!

Byrjað er að því að hræra í kökuna, skiptir svo hvíta deiginu í tvennt og setjur kakó og kaffi í annan hlutan. Svo setur maður báða hlutana saman í eitt kökuform og lætur bakast saman, þannig kemur þetta skemmtilega útlit kökunnar og engin kaka verður eins.

Margir þekkja þessa marmarakökur og eru þær yfirleitt ekki bornar fram með kremi, en ég er að segja ykkur það, eftir að þið prófið þessa marmaraköku með besta súkkulaðikreminu (þetta ótrúlega góða sem er á Djöflatertunni frægu sem margir hafa smakkað og elska) þá munið þið aldrei aftur vilja marmaraköku öðruvísi.

Marmarakaka með besta súkkulaði kreminu

Marmarakaka með besta súkkulaði kreminu

Marmarakaka með besta súkkulaði kreminu

Marmarakaka með besta súkkulaði kreminu

Marmarakaka með besta súkkulaði kreminu

  • 270 g sykur
  • 170 g smjör, mjúkt
  • 2 egg
  • 2 tsk vanilludropar
  • 270 g hveiti
  • 1 tsk matarsódi
  • 1 tsk lyftiduft
  • ½ tsk salt
  • 2 dl AB-mjólk frá Örnu Mjólkurvörum
  • 30 g sykur
  • ¾ dl kaffi (eða heitt vatn)
  • 30 g kakó

Besta súkkulaði kremið

  • 200 g smjör, mjúkt
  • 100 g rjómaostur
  • 400 g flórsykur
  • ½ dl kakó
  • ¾ dl rjómi
  • ¼ dl kaffi (má sleppa)

Aðferð

Nákvæmt aðferðarmyndband er að finna á Instagram.com/lindaben í “Marmarakaka” highlights.

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C og undir+yfir stillingu.
  2. Hærið saman smjör og sykur þar til blandan verður létt og ljós (2-4 mín).
  3. Setjið eggin út í, eitt í einu og hrærið á milli, skafið með fram skálinni með sleikju til að allt blandist vel saman.
  4. Blandið saman hveiti, matarsóda, lyftidufti og salti. Hellið helmingnum af hveiti blöndunni út í eggjablönduna og 1 dl af AB-mjólk, blandið saman og setjið svo restina af hveitinu og AB-mjólkinni út í. Blandið saman.
  5. Skiptið deiginu í tvennt.
  6. Setjið kakó, kaffi og 2 msk sykur í eina skál og hrærið saman. Blandið því saman við annað deigið.
  7. Smyrjið 30×11 cm form (eða álíka stórt), klæðið það með smjörpappír og hellið báðum deigunum ofan í formið, fyrst helminginn af ljósa, svo helminginn af dökka, svo ljósa aftur og seinst dökka.
  8. Bakið í um það bil 35-40 mín eða þar til kakan er bökuð í gegn. Leyfið henni að kólna fullkomlega og útbúið kremið á meðan.
  9. Hrærið smjörið mjög vel eða þar til það er orðið mjög loftmikið og alveg ljóst. Bætið því næst rjómaostinum og flórsykrinum út í hrærið smá saman.
  10. Bætið því næst út í rjómanum og kaffinu og hrærið þar til kremið er orðið silkimjúkt og létt. Setjið kökuna á kökudisk og smyrjið kreminu á kökuna.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben svo ég sjái afraksturinn.

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Marmarakaka með besta súkkulaði kreminu

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5